BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks 2019

26.07.2019

**** Uppselt er í mótið ****

Fjórtánda opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 9. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer að venju fram á golfvellinum að Efra Seli við Flúðir. 

Fyrirkomulag mótsins er með hefðbundnum hætti og mæting í skála er í síðasta lagi kl.12:15.

Ræst verður af af öllum teigum kl.13:00.

Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla og kvennaflokki og verðlaun verða sem hér segir;

Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
Verðlaun - fyrir lengsta teighögg (á braut).
Dregið úr skorkortum.

Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28.

Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði, strax að móti loknu.

Þáttökugjald er kr. 4.700 og er málsverður innifalinn (Pizzahlaðborð)

Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið olibjoss(hja)gmail.com

Rita skal "Golfmót Breiðabliks 2019" í "efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt kennitölu og símanúmeri og/eða netfangi.
Ennfremur skal taka fram ef fólk óskar eftir skráningum saman í holl. 

Mótið er öllum opið og við lofum góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.

Fullbókað var í mótið í fyrra.

Takið daginn frá !

Áfram Breiðablik !

Mótsstjórn

Til baka