BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Flugeldar og áramótabrenna 2018

31.12.2018

Breiðablik og Hjálparsveit Skáta í Kópavogi eru í samstarfi um flugeldasölu og hægt er að styrkja bæði félög með því að kaupa flugeldaávísanir í afgreiðslu Smárans. 

Kaupendur velja þá deild innan Breiðabliks sem þeir hugsa sér að styrkja og í boði eru bæði 5.000 kr og 10.000 kr ávísanir sem gilda á eftirtöldum sölustöðum Hjálparsveitarinnar

- Bakkabraut 4: Björgunarmiðstöðin við Kópavogshöfn (Stór sölustaður)
- Dalveg 6-8: Í húsnæði Kraftvéla (Stór sölustaður)
- Nýbýlavegi 10: Rétt hjá Bónus Nýbýlavegi
- Versölum 5: Við Salalaug
- Vallakór 4: Við Krónuna í Kórahverfi

Áramótabrenna
Hin árlega áramótabrenna Kópavogs verður við Smárahvammsvöll fyrir neðan Digransekirkju á sama stað og undanfarin ár á gamlárskvöld.
- Kveikt verður í brennunni kl. 20:30.
- Flugeldasýning Hjálparsveitar skáta hefst kl. 21:10
- Bílastæði eru við Digraneskirkju, á Smáratorgi og við Smáralind.
- Einnig eru stæði við Fífuna, Smárann og við Fífuhvamm.

 

Til baka