BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Eysteinn Pétur nýr framkvæmdastjóri Breiðabliks

15.03.2017

Eysteinn Pétur Lárusson hefur verið ráðinn sem nýr framkvæmdastjóri Breiðabliks og mun hann hefja störf 1. apríl n.k. 

Eysteinn tekur við af Kristjáni Jónatanssyni sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra Breiðabliks síðast liðin 21 ár. Eysteinn hefur verið framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Breiðabliks fá 2013 en hann hefur víðtæka reynslu af rekstri íþróttafélaga.

Hann var framkvæmdastjóri Hvatar og USAH á Blönduósi og þá starfaði hann á árunum 2007 til 2011 fyrir Þrótt Reykjavík fyrst sem íþróttastjóri og síðar sem framkvæmdastjóri félagsins.

Eysteinn, sem er kennari að mennt, hefur jafnframt A gráðu í þjálfun frá KSÍ ásamt víðtækri reynslu af þjálfun. Eysteinn stundar meistaranám í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst samhliða vinnu.

Hann er kvæntur Brynhildi Olgu Haraldsdóttur og þau eiga saman 3 stráka, Rúnar Ingi (fæddur 2003), Haraldur Björgvin (fæddur 2006) og Lárus Orri (fæddur 2010).

Til baka