BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Elfar Freyr með nýjan 3 ára samning

05.05.2015

Miðvörðurinn sterki Elfar Freyr Helgason hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Elfar Freyr sem verður 26 ára á þessu ári hefur leikið 136 leiki með meistaraflokki Breiðabliks og skorað í þeim 7 mörk.  Hann lék um tíma erlendis með AEK í Grikklandi og Stabæk í Noregi.  Elfar Freyr á þar að auki að baki 6 leiki með U-21 árs liði Ísland og einn A-landsleik.

Það þarf vart að taka fram hve þessi áfangi er mikilvægur fyrir Blikaliðið. Elfar Freyr er geysilega vinnusamur og sterkur miðvörður sem gefur alltaf 110% í alla leiki.

Blikar.is fagnar þessum tíðindum og vonar að þetta verði upphafið að nýjum bikarkafla í sögu Blikaliðsins enda var Elfar Freyr lykilmaður í Bikarmeistaraliði Blika árið 2009 og Íslandsmeistaraliðinu 2010.

-AP

Til baka