BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik – Valur í PEPSI föstudaginn 24. júní kl. 20:00

22.06.2016

Opinberir leikir Breiðabliks og Vals í meistarflokki karla eru 83 frá upphafi. Fyrsti opinberi leikur liðanna var leikur í 2. umferð Bikarkeppni KSÍ á Melavellinum föstudaginn 13. ágúst 1965. Leikið var gegn B-liði Vals. Leikurinn tapaðist 3-1. Næsta viðureign liðanna var árið 1968. Og aftur var leikið gegn B-lið Vals í 2. umferð Bikarkeppni KSÍ. Leikurinn fór fram á Melavellinum 26. júlí 1968. Blikar unnu leikinn 3-0. Þarna í upphafi er tónninn gefinn í markaskorun strax í fyrstu tveimur leikjum liðanna.

Fyrstu viðureignir liðanna í efstu deild voru árið 1971 árið sem Blikar léku fyrst í efstu deild. Fyrri leikurinn 1971 var heimaleikur Blika. Leiknum lauk með 2-0 sigri okkar manna. Hinsvegar tapaðist seinni leikurinn tapaðist 4-2. Um haustið sama ár áttust liðin við í 8 liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ í leik sem Blikar unnu 2-1. Aftur mikið skorað eða samtals 11 mörk í þremur innbyrðisleikjum liðanna árið 1971.

Þrátt fyrir aðeins 2 mörk í tveimur 1-0 sigrum Blika í deildinni árið 2015 eru leikir liðanna gjarnan mikilir markaleikir. Árið 2014 vinna Blikar 3-0 heima og 2-1 úti. Og 8. ágúst árið 2012 vinnur Breiðablik magnaðan 3-4 útisigur á Val í leik þar sem m.a. Ingvar Þór Kale, þáverandi markvörður Blika, var rekinn af velli á 65. mín og Valur komst í 2-0 í þeim leik sem Blikar vinna upp með mörkum á 70., 84., 85., og 90. mín. Árið 2010 vinnur Breiðablik 5-0 heima svo nokkur dæmi um markafjölda séu nefnd.

Valur hefur 5 leikja forskot í þessum 83 opinberum leikjum leikjum liðanna í öllum keppnum alveg frá fyrsta leik liðanna árið 1965. Valur hefur sigrað 35 sinnum, Blikar hafa sigrað 30 sinnum og 18 leikjum hefur lokið með jafntefli.

Tölfræðin er jöfn þegar kemur að leikjum liðanna í efstu deild. Í 58 efstu deildar leikjum hefur Valur sigrað 23 leiki, Blikar sigrað 22 leiki og jafnteflin eru 13. Heimavöllurinn er Blikum drjúgur með 13 sigra og 10 jafntefli af 29 mögulegum.

Blikar haft mjög gott tak á Valsmönnum frá því að liðin komu upp úr 1. deildinni síðast, Valur árið 2005 og Breiðablik árið 2006, því í 20 viðurgeignum frá 2006 hafa Blikar unnið 11 sinnum, Valur aðeins 4 sinnum og 5 sinnum hefur orðið jafntefli. Á Kópavogsvelli vinnum við Val 6 sinnum, gerum 2 jafntefli og töpum 2 leikjum í 10 viðureignum frá 2006.

Valsmenn hafa ekki unnið deildarleik gegn Blikum á Kópavogsvelli síðan 2009. Willum Þór Þórsson var þjálfari Valsmann þegar þeir unnu Blika síðast á Kópavogsvelli árið 2009.

Leikur Breiðablik gegn Val er á Kópavogsvelli á föstudagskvöld klukkan 20:00. Upphiturnarmyndband með tölfræði og viðtali við Willum Þór.

Skyldumæting hjá öllum Blikum.

Kopacabana sveitin verður á staðnum.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

/POA

Til baka