BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik OPEN 2018

16.08.2018

Þrettánda opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 24. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer fram á golfvellinum að Flúðum, eins og undanfarin ár.

Fyrirkomulag mótsins er með hefðbundnum hætti og mæting í skála er í síðasta lagi kl.12:15. Ræst verður af af öllum teigum kl.13:00.

Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla og kvennaflokki og verðlaun verða sem hér segir;

Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
Verðlaun - fyrir lengsta teighögg (á braut).
Dregið úr skorkortum.

Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28.
Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði að móti loknu,í golfskálanum að Efra–Seli.

Mótið er öllum opið og við lofum góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.

Þáttökugjald:

5.000 - með málsverði (Pizzahlaðborð)

3.500 - án málsverðar

Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið olibjoss(hja)gmail.com

Rita skal "Golfmót Breiðabliks 2018" í "efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt símanúmeri og/eða netfangi og hvort fólk ætlar að taka þátt í sameiginlegu borðhaldi.

Ennfremur skal taka fram ef fólk óskar eftir skráningum saman í holl. 

Mótið er öllum opið og við lofum góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.

Takið daginn frá !

Áfram Breiðablik !

Mótsstjórn

Til baka