Breiðablik OPEN 2016
17.08.2016Ellefta opna golfmót knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldið föstudaginn 19. ágúst n.k. og hefst kl.13:00. Mótið fer fram á golfvellinum að Flúðum, eins og undanfarin ár.
Fyrirkomulag mótsins er með hefðbundnum hætti og mæting í skála er í síðasta lagi kl.12:15 ræst af öllum teigum kl.13:00.
Leikinn verður höggleikur og punktakeppni í karla og kvennaflokki og verðlaun verða sem hér segir;
	Höggleikur - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
	Punktakeppni - verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki.
	Nándarverðlaun - á öllum par 3 holum.
	Verðlaun - fyrir lengsta teighögg (á braut).
	Dregið úr skorkortum.
	
	Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28.
	Verðlaunaafhending fer fram yfir málsverði að móti loknu,í golfskálanum að Efra–Seli.
	Þáttökugjald;
- 8.000 - með málsverði.
 - 4.500 - án málsverðar.
 
Skráning er hafin og er tekið á móti skráningum á netfangið olibjoss(hja)gmail.com
Rita skal ,,Golfmót Breiðabliks 2016” í ,,efni/subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn þátttakanda ásamt símanúmeri og/eða netfangi. Ennfremur skal taka fram ef fólk óskar eftir skráningum saman í holl.
Mótið er öllum opið og við lofum góðri skemmtun og ákjósanlegu veðri.
	Takið daginn frá!
	
	Áfram Breiðablik !
	Mótsstjórn.