BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Breiðablik – KA í Bose-mótinu 2019

13.11.2019

Breiðablik er í riðli með KA, Val og Stjörnunni í Bose-mótinu 2019. Fyrsti leikur okkar manna er á laugardaginn þegar við fáum KA-menn í heimsókn á Kópavogsvöll kl.14:00.

Leikjaplanið í riðlinum:

  • Breiðablik – KA. Laugardag16.nóvember kl.14.00
  • Breiðablik – Valur. Fimmtudag 21.nóvember kl.17.00
  • Breiðablik – Stjarnan. Laugardag 30.nóvember kl.12.00

Lið KA og Vals eru að taka þátt í Bose-mótinu í fyrsta sinn, en þetta er í 5. sinn sem Breiðablik tekur þátt.

2018: Úrslitaleikur. Tap fyrir KR í vító eftir 2:2 jafntefli í venjulegum leiktíma.

2017: Úrslitaleikur. Sigur (2:0) á Stjörnunni.

2016: Sigur á Stjörnunni í vító eftir 3:3 jafntefli í venjulegum leiktíma.

2015: Tap (1:0) fyrir KR í Egilshöll.

Við hvetjum alla Blika að mæta á Kópavogsvöll á laugardaginn kl.14:00 og sjá fyrsta æfingaleik liðsins undir stjórn nýju þjálfaranna fyrir keppnistímabilið 2020.

Smella á mynd til að sjá yfirlit allra innbyrðis mótsleikja Breiðabliks og KA frá upphafi. 

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka