BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Borghildur formaður í nýrri stjórn Knattspyrnudeildar

14.02.2013

Á mjög fjölmennum aðalfundi knattspyrnudeildar í gær var Borghildur Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Fjárstoðar kosinn nýr formaður knattspyrnudeildar. Þetta er í fyrsta skipti í rúmlega 55 ára sögu knattspyrnudeildar sem kona tekur við embætti formanns deildarinnar. Borghildur hefur verið mjög virk í starfi deildarinnar undanfarin ár og m.a. verið  formaður meistaraflokksráðs kvenna undanfarin tvö ár. Þar áður átti hún sæti í stjórn Blikaklúbbsins. Hér er hægt að lesa viðtal við Borghildi í nýjasta ársriti knattspyrnudeildarinnar.

Aðrir sem voru kosnir í stjórn voru Gunnar Þorvarðarson, Vilhelm Þorsteinsson, Kristín Rut Haraldsdóttir og Kristján Ingi Gunnarsson. Í varastjórn voru kosnir Hannes Friðbjarnarson og Ingvi J. Ingvason.

Rekstur deildarinnar var í jafnvægi á síðasta ári og var smávægilegur hagnaður af rekstrinum.

Við óskum nýrri stjórn til hamingju með kjörið og vonar að henni farnist vel. Á sama tíma þökkum við fráfarandi stjórn og þá sérstaklega Einari formanni og Ingva gjaldkera þakkir fyrir gott samstarf.

Áfram Breiðablik!

P.S. Í tilefni af 63 ára afmæli Breiðabliks þá verður haldin fjölskylduskemmtun í Smáranum á sunnudaginn. Við hvetjum alla til Blika til að mæta!

Til baka