BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Blikar mæta Val í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins

05.04.2016

Eftir að Fylkir lagði KA í síðasta leik riðilsins i Lengjubikarnum í gærkvöldi er ljóst að strákarnir okkar mæta Val í 8-liða úrslitum í þeirri keppni.

Leikurinn fer fram á Valsvellinum á Hlíðarenda á miðvikudaginn  í næstu viku kl.19.00.

Valsmenn sigruðu í sínum riðli í keppninni og eru með flott lið. Það verður því gaman að sjá hvernig Blikastrákarnir koma til leiks eftir góða æfingaferð til Spánar.

Við munum segja nánar frá þessum leik þegar nær dregur.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

Til baka