Ársmiðar á Kópavogsvöll eru nú komnir í sölu
27.04.2019Knattspyrnudeildin í samvinnu við Blikaklúbbinn hefur hafið sölu á árskortum á Kópavogsvöll á leiki í Pepsi Max deildunum sumarið 2019.
Árskortin gilda á alla leiki Breiðabliks í Pepsi Max deildum karla og kvenna.
Almenn kort kosta 14.000 krónur en 7.000 krónur fyrir 25 ára og yngri. Kortin verða afhent í Smáranum á skrifstofutíma og fyrir alla heimaleiki Breiðabliks.
Ef kaupandi á kort frá fyrri árum er hægt að skrá númer kortsins í athugasemd og það verður virkjað að nýju og óþarfi að fá nýtt.
Smellt HÉR eða á myndina til ganga frá greiðslu og þá er farið inn á greiðslugátt Borgunar.
Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar!