BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Aron Bjarna framlengir

14.04.2019

Framherjinn knái Aron Bjarnason hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Aron sem er 23 ára gamall hefur spilað 61 mótsleik fyrir Breiðablik og skorað í þeim 14 mörk. Hann hefur einnig leikið með Þrótti, ÍBV og Fram á ferlinum.

Aron kom til Breiðabliks frá ÍBV árið 2017 og hefur verið mikilvægur hlekkur í sóknarleik Blikaliðsins frá þeim tíma.

Aron hefur tekið stöðugum framförum síðan hann kom og hefur verið nær óstöðvandi á undirbúningstímabilinu. Hann mun án efa koma gríðarlega sterkur til leiks í mótið sem er að hefjast.

Við Blikar fögnum þessum frábæru tíðindum. Það verður virkilega spennandi að fylgjast með þessum öfluga kantmanni á komandi tímabili.

-AP

Til baka