BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Æfingaleikur við Fram

13.11.2015

Fyrsti undirbúningsleikur fyrir Íslandsmótið 2016 hjá meistaraflokki karla verður á morgun laugardag í Fífunni kl.11.00.

Það verður gaman að sjá hvernig menn koma undan pásunni og hvort þjálfararnir komi eitthvað á óvart með liðsuppstillingu sinni.

Framarar sem lentu í ströggli í 1. deildinni ætla sér örugglega að gera betur á komandi ári. Kópavogsbúinn Ásmundur Arnarson hefur tekið við þjálfun liðsins og innanborðs eru m.a. Blikarnir Atli Fannar og Ingi Óli.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar! 

Blikaklúbburinn

Til baka