BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Undankeppni Evrópudeildar UEFA 2023/24: Breiðablik - Zrinjski Mostar

15.08.2023 image

Þá er komið að 8. Evrópuleik okkar manna á þessu tímabili þegar sprækt liðið Zrinjski (HŠK Zrinjski Mostar) frá Bosníu-Hersegóvínu kemur í heimsókn á Kópavogsvöll. Leikurinn er í 3. umferð undankeppni Evrópudeildar UEFA 2023/24. 

Almenn miðasala á leikinn hefst á Stubbur klukkan 12:00 í dag, þriðjudag 15. ágúst.

Meistara-og Evrópudeld UEFA 2023/24

Meistaradeild: Forkeppni

Þegar dregið var í forkeppni Meistaradeildarinnar í Nyon 13. júní kom liðið Tre Penne frá San Marínó upp úr pottinum sem fyrsti andstæðingur Breiðabliks í forkeppni Meistaradeildarinnar sem fram fór á Kópavogsvelli dagana 27. og 30. júní 2023. Leikurinn við San Marínó liðið var undanúrslitaleikur sem Blikar unnu 7:1. Úrslitaleikurinn var gegn Budućnost Podgorica, 30. júní. Blikar unnu þann leik 5:0 og tryggðu sér þar með áfram í undankeppnina.

Meistaradeild: Undankeppni

Breiðablik mætti írsku meisturunum Shamrock Rovers í 1. umferð undankeppninnar og gerði sér lítið fyrir og slógu þá írsku út með sigri gegn þeim í Dublin 0:1 og á Kópavogsvelli 2:1.

Í 2. umferð mættu Blikar dönsku meisturunum FC Copenhagen. FCK vann báða leikina: 0:2 á Kópavogsvelli og 6:3 á Paken í Kaupmannahöfn.

Evrópudeild: Undankeppni

Blikaliðið tekur nú þátt í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar. Andstæðingurinn er Zrinjski frá Mostar í Bosníu-Hersegóvínu. Fyrri leikurinn var í Mostar í síðustu viku og lauk með stórum sigri heimamanna 6:2. Nánar um þann leik í mjög fróðlegum pistli > "Þeir gættu brúarinnar". 

Síðari viðureign liðanna verður á Kópavogsvelli núna á fimmtudaginn. Flautað verður til leiks kl.17:30!

Saga Blika í Evrópukeppnum

image

Karlalið Breiðabliks hefur tekið þátt í Evrópukeppnum 5 ár í röð og í 9 ár af 13 mögulegum – fyrst árið 2010. Leikurinn við Zrinjski Mostar á Kópavogsvelli á fimmtudaginn verður 35. Evrópuleikur Blikaliðsins frá upphafi. 

Þátttaka í Evrópumótum til þessa:

- Meistaradeild: 2023, 2011.

- Evrópudeild: 2023, 2020, 2019, 2016, 2013, 2010.

- Sambandsdeild: 2022, 2021.

Liðin sem Blikar hafa mætt í Evrópuleikjum:

2023 - Zrinjski Mostar, FC Copenhagen, Shamrock Rovers, Buducnost Podgorica, Tre Penne.

2022 - Istanbul Basaksehir, Buducnost Podgorica, UE Santa Coloma.

2021 - Aberdeen, Austria Wien, Racing Union.

2020 - Rosenborg.

2019 - Vaduz.

2016 - Jelgava.

2013 - Aktobe, Sturm Graz, FC Santa Coloma.

2011 - Rosenborg.

2010 - Motherwell.

Samtals 34 leikir í 13 löndum - 14 sigrar, 5 jafntefli, 15 töp.

Flestir leikir í Evrópukeppnum:

2023: Í gangiEvrópudeild UEFA. Undankeppni: 3 umf. Zrinjski Mostar. Meistaradeild UEFA. Undankeppni: 2.umf. F.C.Copenhagen. 1.umf. Shamrock Rovers. Forkeppni: undanúrslit - Tre Penne og úrslit - Buducnost Podgorica.

2022: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Istanbul Basaksehir - 2.umf. Buducnost Podgorica - 1.umf. UE Santa Coloma.

2021: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Aberdeen FC - 2.umf. Austria Wien - 1.umf. Racing Uion.

2013: Evrópudeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. FC Aktobe - 2.umf. Sturm Graz - 1.umf. FC Santa Coloma.

Framhaldið. 

Þegar dregið var í umspil & 4. umferð Evrópudeildar og Sambandsdeildar í Nyon varð ljóst að sigurvegari úr einvígi Breiðabliks og Zrinjski Mostar fer áfram og mætir austurríska liðinu LASK í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Lið LASK, sem kemur inn í keppnina í umspilinu 24.& 31.ágúst, er nú í 6. sæti í deildinni heima með 4 stig eftir þrjá leiki. SK Sturm Graz er efst með 7 stig eftir 3 leiki.

Taplið í einvígi Breiðabliks og Zrinjski Mostar fer í umspilseinvígi um sæti í Sambandsdeildinni og mætir þar sigurvegurum einvígis Str­uga frá Norður-Makedón­íu og Swift Hesper frá Lúx­em­borg. Fyrri leikur þess einvígis endaði 3:1 fyrir Str­uga.

Um andstæðinginn

image

HŠK Zrinjski Mostar er atvinnuknattspyrnufélag með aðsetur í Mostar í Bosníu-Hersegóvínu. Félagið leikur í úrvalsdeildinni þar í landi og hefur verið eitt af bestu liðum landsins enda unnið 8 meistaratitla undanfarin ár.

Félagið spilar heimaleiki sína á Stadion pod Bijelim Brijegom í Mostar. Stuðningsmannaklúbbur  Zrinjski heitir Ultras Mostar og var stofnaður árið 1994.

Félagið var stofnað árið 1905 og er elsta knattspyrnufélagið í Bosníu-Hersegóvínu. Eftir seinni heimsstyrjöldina voru öll félög sem höfðu tekið þátt í króatísku deildinni á stríðstímum bönnuð í Júgóslavíu, Zrinjski var einn af þeim. Bannið stóð frá 1945 til 1992.

Eftir sjálfstæði Bosníu-Hersegóvínu voru gerðar umbætur á félaginu. Zrinjski Mostar lék í 1. deildinni til ársins 2000. Eftir það lék liðið í úrvalsdeildinni og vann sinn fyrsta titil þar árið 2005.

Frægasti leikmaður sem hefur spilað í Zrinjski treyju er án nokkurs vafa króatíski miðjumaðurinn Luka Modrić. Hann skrifaði undir sinn fyrsta samning 18 ára gamall, hjá Dinamo Zagreb, en eyddi fyrsta tímabili sínu á láni hjá Zrinjski. Þrátt fyrir ungan aldur spilaði hann 22 deildarleiki tímabilið 2003-04, skoraði átta mörk og sýndi að hann ætti bjarta framtíð fyrir sér.

Liðið tók fyrst þátt í Evrópukeppni árið 2000 í UEFA Intertoto Cup. Leikir liðsins í Evrópukeppnum síðan eru 64 leikir: 26 sigrar, 22 töp og 16 jafntefli. 

Nánar um HŠK Zrinjski Mostar: Sagan.  Heimasíða félagsins.  Wikipedia.

image

Leikmannahópur Blika

Óskar Hrafn Þorvaldsson er aðalþjálfari meistaraflokks karla. Óskar hefur stýrt liðinu frá árinu 2019. Halldór Árnason er aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla frá 2019. Valdimar Valdimarsson er markmannsþjálfari liðsins. Hann tók við því starfi af Ólafi Péturssyni. Aron Már Björnsson er styrktarþjálfari liðsins síðan 2016. Aron er íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn sem afreksþjálfari hjá elstu flokkum karla í Breiðabliki. Eyjólfur mun einnig vera í þjálfarateymi meistaraflokks karla, þar sem hann mun halda utan um aðlögun yngri leikmanna inn í meistaraflokkshópinn. Í sjúkraþjálfarateyminu eru þær Særún Jónsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Marinó Önundarson og Alex Tristan Gunnþórsson eru liðsstjórar.

image

Dagskrá

Breiðablik og Zrinjski Mostar mætast á Kópavogsvelli í 3. umf undankeppni Evrópudeildar UEFA 2023/24, fimmtudaginn 17. ágúst kl.17:30!

Almenn miðasala á leikinn hefst á Stubbur klukkan 12:00 í dag, þriðjudag 15. ágúst.

Græna stofan verður opin fyrir leik, börger á grilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni. Blikaklúbburinn kynnir og selur Breiðabliksvarning.

Hlið vallarins opna kl.16:30! Minnum á að mæta tímanlega því skanna þarf alla miða við hliðin.

Stöð 2 Sport sýnir leikinn fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Útsending hefst kl.17:15!

Bein textalýsing UEFA hér. 

Dómarar eru frá Grikklandi. Aðaldómari: Anastasios Papapetrou. Aðstoðardómarar: Tryfon Petropoulos og Iordanis Aptosoglou. Fjórði dómari: Andreas Gamaris. Myndbandsherbergi: Agelos Evangelou og Spyridon Zampalas.

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

image

Til baka