BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Umspil Sambandsdeildar Evrópu 2023/24: Breiðablik – FC Struga

31.08.2023 image

Tíundi Evrópuleikur okkar manna á þessu tímabili er seinni umspilsleikuinn gegn FC Struga frá Norður Makedóníu.

Fyrri leiknum lauk með eins marks sigri okkar manna.

Sigur eða jafntefli gegn Struga tryggir okkur sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu – fyrst íslenskra liða.

image

Byrjunarlið okkar manna í fyrri leiknum gegn FC Struga á Biljanini Izvori vellinum í Ohrid í Norður-Makedóníu: Aftrari röð f.v.: Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði, Damir Muminovic, Anton Logi Lúðvíksson, Klæmint Andrason Olsen, Viktor Örn Margeirsson, Anton Ari Einarssona markvörður. Fremri röð f.v.: Jason Daði Svanþórsson, Kristinn Steindórsson, Davíð Ingvarsson, Oliver Sigurjónsson og Gísli Eyjólfsson. 

Blikar í Evrópukeppnum UEFA 2023/24

Forkeppni - Meistaradeild

Í júní þegar dregið var í forkeppni Meistaradeildarinnar kom liðið Tre Penne frá San Marínó upp úr pottinum sem fyrsti andstæðingur Breiðabliks í forkeppni Meistaradeildarinnar. Forkeppnin fór fram á Kópavogsvelli dagana 27. & 30. júní 2023. Leikurinn við San Marínó liðið var í undanúrslitum. Breiðablik vann leikinn 7:1 og spilaði úrslitaleikinn gegn Budućnost Podgorica. Blikar unnu þann leik 5:0 og tryggðu sér þar sæti í undankeppni Meistaradeildarinnar.

Undankeppni – Meistaradeild

1.umferð - Breiðablik mætti írsku meisturunum Shamrock Rovers í 1. umferð undankeppninnar og gerði sér lítið fyrir og slógu þá írsku út með 0:1 sigri í Dublin og 2:1 sigri á Kópavogsvelli.

2. umferð - Blikar mættu dönsku meisturunum FC Copenhagen í 2. umfeð. FCK vann báða leikina: 0:2 á Kópavogsvelli og 6:3 á Paken í Kaupmannahöfn.

Undankeppni - Evrópudeild

3. umferð – Blikaliðið tók þátt í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar og mætti þar Zrinjski frá Mostar í Bosníu-Hersegóvínu. Fyrri leikurinn í Mostar lauk með stórsigri heimamanna 6:2. Nánar um leikinn hér> "Þeir gættu brúarinnar". Seinni leikurinn var á Kópavogsvelli og lauk með 1:0 sigri okkar manna. Nánar um leikinn hér> Mikilvægt skref í átt að Evrópu! Zrinjiski vann einvígið samanlagt 6:3.

Umspil (play-offs) – Sambandsdeild

Breiðablik og FC Struga mætast á Kópavogsvelli í síðari umspilsleik liðanna um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA 2023/24. Sigur okkar eða jafntefli tryggir Breiðabliki sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu – fyrst íslenskra liða. Flautað verður til leiks fimmtudaginn 31. ágúst kl.16:45!

Frá fyrri leik liðanna á Biljanini Izvori vellinum í Ohrid í Norður-Makedóníu:

Saga Blika í Evrópukeppnum

image

Íslandsmeistarar Breiðabliks 2022

Karlalið Breiðabliks hefur tekið þátt í Evrópukeppnum 5 ár í röð og í 9 ár af 13 mögulegum – fyrst árið 2010. Leikurinn við FC Struga á Kópavogsvell verður 37. Evrópuleikur Blikaliðsins frá upphafi. 

Þátttaka í Evrópumótum til þessa:

- Meistaradeild: 2023, 2011.

- Evrópudeild: 2023, 2020, 2019, 2016, 2013, 2010.

- Sambandsdeild: 2023, 2022, 2021.

Liðin sem Blikar hafa mætt í Evrópuleikjum:

2023 – FC Struga - Zrinjski Mostar, FC Copenhagen, Shamrock Rovers, Buducnost Podgorica, Tre Penne.

2022 - Istanbul Basaksehir, Buducnost Podgorica, UE Santa Coloma.

2021 - Aberdeen, Austria Wien, Racing Union.

2020 - Rosenborg.

2019 - Vaduz.

2016 - Jelgava.

2013 - Aktobe, Sturm Graz, FC Santa Coloma.

2011 - Rosenborg.

2010 - Motherwell.

Samtals 36 leikir í 14 löndum - 16 sigrar, 5 jafntefli, 15 töp.

Flestir leikir í Evrópukeppnum:

2023: Í gangiSambandsdeild UEFA: Umspil. FC Struga. Evrópudeild UEFA. Undankeppni: 3 umf. Zrinjski Mostar. Meistaradeild UEFA. Undankeppni: 2.umf. F.C.Copenhagen. 1.umf. Shamrock Rovers. Forkeppni: undanúrslit - Tre Penne og úrslit - Buducnost Podgorica.

2022: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Istanbul Basaksehir - 2.umf. Buducnost Podgorica - 1.umf. UE Santa Coloma.

2021: Sambandsdeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. Aberdeen FC - 2.umf. Austria Wien - 1.umf. Racing Uion.

2013: Evrópudeild UEFA. Undankeppni: 3.umf. FC Aktobe - 2.umf. Sturm Graz - 1.umf. FC Santa Coloma.

Um andstæðinginn

image

Saga FC Struga Trim & Lum

Þörfin fyrir knattspyrnufélag í borginni Struga varð til þess að forystumenn byggingarfyrirtækisins Trim & Lum stofnuðu FC Struga í ágúst 2015 og skráðu liðið til keppni í 4. deild sem liðið vann á fyrsta ári. Árið eftir vann FC Struga 3. deildina með yfirburðum; 17 sigrar, 8 jafntefli og aðeins 1 tap. Eftir 2 ár í 2. deild, og aðeins 4 ár frá stofnun félagsins, var Struga liðið komið í efstu deild – fyrsta og eina lið Makedóníu til að komast upp í efstu deild á svo fáum árum frá stofnun félags.

Evrópuþáttaka FC Struga

FC Struga tók þátt í Sambandsdeild UEFA 2021/22 og tapaði samanlagt 2:5 fyrir FC Liepaja frá Lettlandi í 1.umf undankeppni.

Sem sigurvegarar í Makedónísku deildinni 2022 tók liðið þátt í Meistardeild UEFA 2023/24 en tapaði einvíginu við Zalgiris 1:2.

Í Sambandsdeildinni hefur félagið unnið tvo leiki og tapað einum: Sigur gegn Budućnost Podgorica samanlagt 5:3 í 2.umf undankeppninnar. Sigur gegn Swift Hesperange 4:3 í 3.umf undankeppninnar en 0:1 tap gegn Breiðabliki í fyrri umspilsleik um sæti í Sambandsdeild Evrópu 2023/24. 

Leikmannahópur Blika

Óskar Hrafn Þorvaldsson er aðalþjálfari meistaraflokks karla. Óskar hefur stýrt liðinu frá árinu 2019. Halldór Árnason er aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla frá 2019. Valdimar Valdimarsson er markmannsþjálfari liðsins. Hann tók við því starfi af Ólafi Péturssyni. Aron Már Björnsson er styrktarþjálfari liðsins síðan 2016. Aron er íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn sem afreksþjálfari hjá elstu flokkum karla í Breiðabliki. Eyjólfur mun einnig vera í þjálfarateymi meistaraflokks karla, þar sem hann mun halda utan um aðlögun yngri leikmanna inn í meistaraflokkshópinn. Í sjúkraþjálfarateyminu eru þær Særún Jónsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Marinó Önundarson og Alex Tristan Gunnþórsson eru liðsstjórar.

image

Dagskrá

Breiðablik og FC Struga mætast á Kópavogsvelli í síðari umspilsleik liðanna um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu 2023/24. Flautað verður til leiks fimmtudaginn 31. ágúst kl.16:45!

Uppselt er á leikinn en almenn miðasala var á Stubbur 

Græna stofan verður opin fyrir leik, börger á grilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni. Blikaklúbburinn kynnir og selur Breiðabliksvarning.

Hlið vallarins opna kl.15:45! Minnum á að mæta tímanlega því skanna þarf alla miða við hliðin.

Stöð 2 Sport sýnir leikinn fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Útsending hefst kl.16:15!

Bein textalýsing UEFA hér. 

Dómarar eru frá Þýskalandi. Aðaldómari: Daniel Schlager. Aðstoðardómarar: Lasse Koslowski og Sven Waschitzki. Fjórði dómari: Patrick Ittrich. Myndbandsherbergi: Sascha Stegemann og Katrin Rafalski . 

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

PÓÁ

Grafík: Halldór Halldórsson: 

image

Til baka