BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Tveir ungir Blikar til Bologna!

01.10.2020 image

Breiðablik hefur samþykkt tilboð Bologna á Ítalíu um lán og kauprétt á hinum ungu og efnilegu Hlyn Frey Karlssyni og Gísla Gottskálk Þórðarsyni en þeir eru báðir fæddir árið 2004.

Leikmennirnir ungu verða á láni fram á næsta sumar en þá mun Bologna taka ákvörðun um hvort af kaupum verði. Hjá félaginu er fyrir Andri Fannar Baldursson sem hefur staðið sig frábærlega og er í dag orðinn meðlimur aðalliðs félagsins aðeins 18 ára að aldri.

Þetta er frábært tækifæri fyrir hina bráðefnilegu leikmenn og sýnir enn og aftur að Breiðablik er fremst í flokki íslenskra liða þegar kemur að þróun og tækifærum fyrir unga og efnilega leikmenn.

Leikmennirnir halda til Bologna strax á morgun.  

Blikar eru afar stolt af þessum ungu og efnilegu leikmönnum og óskar þeim alls hins besta á erlendri grundu.

image

Hlynur Freyr Karlsson

image

Gísli Gottskálk Þórðarson

Til baka