Sveinn Árnason - Kveðja frá Blikum.
03.07.2012Okkar ágæti félagi Sveinn Árnason lést á Líknardeild Landspitalans í Kópavogi þann 24.júní s.l. sextugur að aldri.
Sveinn flutti í Kópavog ásamt fjölskyldu sinni á níunda áratugnum og varð snemma virkur í starfi Breiðabliks og þá einkum knattspyrnudeildar.
Hann var umsjónarmaður yngri flokka um árabil og mjög virkur í starfi deildarinnar.Sveinn var ásamt fleiri góðum félögum í fararbroddi við stofnun stuðningsmannafélagsins ,,Stuðblika". Sveinn var ennfremur mjög virkur í því mikla uppbyggingarstarfi sem fór fram á félagssvæði Breiðabliks þegar
hafist var handa við gerð gerfigrasvallar og síðar æfingasvæða, að ógleymdri byggingu íþróttahúss og félagsaðstöðu í Smáranum. Sveinn tók síðar sæti í aðalstjórn félagsins og sat þar um langt árabil.Einnig átti hann sæti í heiðursveitinganefnd félagsins frá árinu 2000 til dauðadags.
Sveinn Árnason var ekki sú manngerð að hann væri mikið að trana sjálfum sér fram og störf sín í þágu okkar góða félags vann hann af eðlilslægri yfirvegun og hógværð.
Sveinn var mikill Bliki og hafði lifandi áhuga á starfinu innan félagsins. Erfið veikindi síðastliðin tvö ár komu ekki í veg fyrir hann fylgdist gjörla með því sem á seyði var í félaginu.
Sveinn var jarðsunginn frá Fossvogskirkju s.l. föstudag.
Við Blikar kveðjum góðan félaga og þökkum honum fyrir samveruna, um leið og við sendum fjölskyldu og vinum Sveins innilegar samúðarkveðjur.