Samið við Norvik
30.04.2013Síðdegis í gær skrifaði Knattspyrnudeild Breiðabliks og Norvik undir samstarfssamning til tveggja ára. Samningurinn nær til Krónunnar, Intersport og síðast en ekki síst Byko. Intersport mun meðal annars vera með Breiðabliksbúninginn til sölu.
Það er ljóst að styrktaraðilar félagsins eru mjög mikilvægur hlekkur í rekstri deildarinnar og sérstakt ánægjuefni að Byko sé komið aftur til okkar en félagið hefur eins og allir vita verið einn af okkar aðalstyrktaraðilum í gegnum tíðina.
Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Norvik ómetanlegan stuðning og hvetur alla Blika til að beina viðskiptum sínum til þeirra. Veðrið leikur við okkur þessa dagana, góð hugmynd að fara í Byko og kaupa grill, síðan í Krónuna og ná í steik á grillið, og koma við í Intersport og kaupa sér létt og þægileg útivistarföt til að standa í við grillið