BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Sævar Atli til Breiðabliks

30.03.2021 image

Leiknir R. og Breiðablik hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Sævars Atla Magnússonar frá Leikni til Breiðabliks. Félagaskiptin munu ganga í gegn eftir að keppnistímabilinu 2021 lýkur og mun Sævar því leika með Leikni út tímabilið.

Sævar Atli er fyrirliði Leiknis og var í lykilhlutverki í fyrra þegar Leiknir tryggði sér sæti í Pepsi Max deildinni. Hann hefur þegar leikið 129 leiki fyrir Leikni og skorað í þeim 61 mark.

Áhuginn á Sævari Atla var mikill og eru Blikar hæstánægðir með það að hann hafi valið Breiðablik.

Blikar þakka Leikni fyrir góð samskipti vegna fyrirhugaðra félagaskipta. Við óskum Sævari Atla og Leiknismönnum góðs gengis í Pepsi Max deildinni í sumar. 

„Nú er þetta búið. Nú er bara fókusinn á að bæta minn leik og spila með Leikni í sumar, uppeldisfélaginu mínu. Annað tímabil í efstu deild og þetta verður ógeðslega spennandi og krefjandi verkefni. Ég hef mikla trú á því að við gerum vel í sumar," sagði Sævar meðal annars í viðtali við Leiknir.com en viðtalið má sjá hér að neðan.

Til baka