Meistaradeildin, Rosenborg - Breiðablik í kvöld
13.07.2011Ágætu Blikar, þá er komið að stóra deginum hjá klúbbnum okkar. Fyrsti leikur okkar í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Andstæðingar okkar eru ekki af verri kantinum; margfaldir Noregsmeistarar Rosenborg frá Þrándheimi. Leikurinn hefst kl. 20.45 að norskum tíma sem þýðir kl.18.45 á Íslandi.
Leikurinn verður sýndir á Spot kl. 18:30
Hægt er að kaupa sér aðgang að leiknum í gegnum norsku síðuna viaplay.no
http://viaplay.no/Sports/Soccer/Champions-League-Live/Season-2011/129438/20110713-2030-Qualification-Round-2-Rosenborg-Breidablik.product
Leikurinn kostar 99 norskar krónur eða um 2.100 krónur.
Sjá upplýsingar á þessari slóð.
http://www.rbk.no/incoming/article205089.ece
Einnig hefur verið bent á slóðina myp2p.eu.en við vitum ekki hvort sú leið er fær.
http://www.myp2p.eu/broadcast.php?matchid=122599&part=sports
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum þá eru deilur á milli Blika og AEK um rétt Elvars Freys Helgasonar að spila þennan leik. Það er þó ljóst að hann mun ekki leika í kvöld. Strákarnir láta það ekki trufla sig í undirbúningnum og senda baráttukveðjur til allra Blika heima. Þeir eru staðráðnir í því að gefa allt í leikinn í kvöld.
Ólafur þjálfari gerði nokkrar óvæntar breytar á byrjunarliðinu, hægt er að sjá byrjunarliðið í annari frétt á blikar.is
Reynt verður að sýna leik Breiðabliks og Rosenborgar í veitingasal Smárans í kvöld frá kl.18.30. Við getum ekki lofað að það gangi upp en við munum reyna. Allir Blikar velkomnir,
Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar.
Blikaklúbburinn
P.S. Við minnum á forsöluna á heimaleik Blika gegn Rosenborg í Smáranum. Einungis selt í númeruð sæti.