BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Eldri Blikar heiðraðir

08.10.2013 image

Eftirtaldir leikmenn fengu viðurkenningarskjal fyrri að ná þeim áfanga að leika 100 leiki með meistarflokki Breiðabliks; Bjarni BjarnasonDaði JónssonGrétar KristjánssonGuðmundur H. JónssonGuðmundur ÞórðarssonHaraldur ErlendssonHeiðar BreiðfjörðHelgi HelgasonJón Ingi RagnarssonJúlíus JúlíussonSigmundur Eiríksson.

Laugardaginn 28. september 2013 stóð knattspyrnudeild Breiðabliks, Blikaklúbburinn og Stuðningsmannavefurinn Blikar.is fyrir uppákomu í Smáranum, þar sem leikmenn meistaraflokks sem byrjuðu og hættu að leika knattspyrnu með Breiðabliki á árunum 1957-1970, fengu viðurkenningu fyrir ómetanlegt framlag til Breiðabliks á upphafsárum knattspyrnunnar í Kópavogi. Það voru Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar, Jón Ingi Ragnarsson, fyrrum leikmaður og formaður knattspyrnudeildar og Pétur Ómar Ágústsson, fyrrum formaður meistaraflokksráðs, sem afhentu þessum heiðursmönnum viðurkenningarskjal frá deildinni.

Mjög góð mæting var á þennan atburð og mæltist þetta frumkvæði mjög vel fyrir hjá öllum. Ekki eru allir þessir leikmenn á lífi en margir aðstandendur þeirra mættu og tóku við skjalinu fyrir þeirra hönd. Pétur Ómar sagði frá Stuðningsmannavefnum Blikar.is og hvernig verið væri að safna allri hugsanlegri tölfræði og upplýsingum um sögu knattspyrnudeildar frá upphafi.

image

Leikmenn og aðstandendur látinna leikmanna sem fengu viðurkenningu fyrir ómetanlegt framlag til Breiðabliks á upphafsárum knattspyrnunar í Kópavogi.

Eftirtaldir einstaklingar fengu viðurkenningu fyrir ómetanlegt framlag til Breiðabliks á upphafsárum knattspyrnunnar í Kópavogi;  Baldur Sigurgeirsson, Dagbjartur Björnsson, Einar Magni Sigmundsson, Geir Magnússon, Grétar Kristjánsson, Guðmundur H. Jónsson, Guðmundur T. Magnússon, Guðmundur Vikar Einarsson, Gylfi Guðmundsson, Helgi Magnússon, Jakob Ólason, Jóhann H. Jónsson, Jóhannes Haraldsson, Jón Ingi Ragnarsson, Kristján Erlendsson, Logi Kristjánsson, Njáll Sigurjónsson, Ómar Guðmundsson, Ragnar Magnússon, Reynir Jónsson, Sigmundur Eiríksson, Sigurður Friðriksson, Sigurjón Hrólfsson, Sigvaldi Ragnarsson, Símon Ægir Gunnarsson, Sveinn V. Jónsson, Sveinn H. Skúlason, Sverrir Guðmundsson, Þorsteinn Karlsson, Þorsteinn Steingrímsson.

Ásamt öðrum fengu nokkrir af þessum heiðursmönnum síðan aðra viðurkenningu fyrir að hafa náð þeim áfanga að leika 100 leiki eða meira með meistaraflokki Breiðabliks.

Hjómsveitin Músakk frumflutti lagið Breiðablik sem Kópavogsbúinn Hinni Rasmus samdi árið 1966. Sonur hans Tómas samdi textann ásamt föður sínum. Þetta lag hefur aldrei komið fyrir almenningssjónir áður en í bígerð er að gefa það út á diski.

image

Hjómsveitin Músakk frumflutti lagið Breiðablik sem Kópavogsbúinn Hinni Rasmus samdi árið 1966. Sonur hans Tómas samdi textann ásamt föður sínum. Þetta lag hefur aldrei komið fyrir almenningssjónir áður en í bígerð er að gefa það út á diski

Ólafur Kristjánsson, þjálfari meistaraflokks, kom og spjallaði við hópinn. Öllum var síðan boðið á leik Breiðabliks og Keflavíkur í Pepsí-deildinni en Blikar unnu þann leik 3:2.

Aðstandendur látinna leikmanna tóku á móti viðurkenningum fyrir þessa leikmenn; Ármann J. Lárusson, Árni Kristmundsson, Björgvin Guðmundsson, Daði Jónsson, Friðbjörn Guðmundsson, Gunnlaugur Sigurgeirsson, Hilmar Björnsson, Ingvi Guðmundsson, Júlíus Júlíusson, Ketill Högnason, Magnús Tryggvason.

image

Haraldur Erlendsson, Helgi "Basli" Helgason og Guðmundur Þórðarson fengu viðurkenningu fyrir 100 leikja áfanga.

Til baka