BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Atli Sigurjónsson genginn í raðir Blika

18.05.2015

Einn af betri leikmönnum Íslands, Atli Sigurjónsson, hefur ákveðið að spila með Blikum í sumar. Hann var að skrifa undir 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Atli, sem er uppalinn hjá Þór Akureyri, hefur að undanförnu verið hjá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. Atli er fæddur árið 1991 og er því 23 ára. Hann er öflugur sóknarmiðjumaður sem hefur leikið landsleiki með yngri landsliðum Íslands. Hann á að baki 87 leiki og 5 mörk með Þór Akureyri og 51 leik og 5 mörk með KR.

Knattspyrnudeild Breiðabliks fagnar komu þessa efnilega leikmanns og bindur miklar vonir við að hann smelli vel inn í hið léttleikandi Blikalið í sumar.

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar! 

Til baka