S
ÍA
1 2
Breiðablik
A-deild 13. umferð Akranesvöllur 04.07.2026
7
2
9

Það var einkar ánægjuleg sjón þegar hinn 21 árs Dagur Örn Fjeldsted átti snilldarsendingu inn á teig Skagamanna á áttugustu mínutu leiksins og hinn 17 ára Þór Andersen Willumsson dúkkaði upp og skallaði knöttinn snilldarlega í mark heimamanna. Þrátt fyrir þunga sókn þeirra gulklæddu undir lok leiksins hélt vörn Blika velli og við héldum sigurhreifir með þrjú stig í Kópavoginn. Þetta var ekki besti leikur Blikanna á tímabilinu en okkur er í raun alveg sama því stigin komu í hús!

Akranes skartaði sínu fegursta enda Írskir dagar í gangi í bænum og vart þverfótað fyrir rauðhærðu fólki út um allar trissur! Slatti af bleiknefja Kópavogsbúum var líka mætt í bæinn og kom sér notalega fyrir í grasbalanum norðan við iðjagrænan Skagavöllinn. Þar var að sjálfsögðu fremstur í flokki Flosi Eiríksson formaður knattspyrnudeildar en hann er að eigin sögn komin af hinni írsku Melkorku Mýrkjartansdóttur í langmæðraætt og frönskum skútusjómönnum í langfeðraætt. Hann var vígreifur í upphafi leiksins og sagði að þrátt fyrir að marga reynslubolta vantaði þá myndu ungu leikmennirnir sjá um að innbyrða sigurinn. Og formaðurinn reyndist sannspár! Hinn 15 ára Arnar Bjarki Gunnleifsson var arkitektinn af fyrra marki Blika. Hann hirti knöttinn við miðjubogann eftir misheppnaða sendingu heimapilta. Geystist fram völlinn og sendi svo hárnákvæma sendingu á hinn 21 árs Ágúst Orra Þorsteinsson sem jafnaði leikinn með góðu skoti fram hjá hinum 19 ára markverði Skagapilta Jóni Sölva Símonarsyni, sem er að sjálfsögðu uppalinn Bliki.

Næsti leikur Blikaliðsins er gegn frískum nýliðum Keflavíkur á Kópavogsvelli mánudaginn 13.júlí. Það verður spennandi að sjá hvernig Blikaliði þjálfarateymið getur stillt upp í þeim leik. Margir af þeim leikmönnum sem hafa verið í meiðslalista eru að skríða saman og verða sjálfsagt orðnir leikfærir þá. En á móti kemur þá er alltaf erfitt að breyta sigurliði!

P.S. Fyrir tölfræðinörda þá er vert að geta þess að með markinu tókst Þór Andersen Willumssyni að rjúfa einokun bræðranna Jóhanns, Sigurðar og Arnars Grétarssonar á að vera eina bræðraþríeykið sem hefur skorað mark fyrir Breiðablik í efstu deild karla. En eins og flestir vita þá er Þór yngsti bróðir Willums Þórs og Bryjólfs Andersen Willumssonar. Við mælum sérstaklega með að stuðningsmenn Blika eyða fríinu sínu í að fletta upp staðreyndum á hinum frábæra vef stuðningsmannaklúbbs meistaraflokka Breiðabliks  blikar.is

Áfram Blikar- alltaf- alla leið!

-AP