Knattspyrnudeild Breiðabliks fagnar félagaskiptum Elfars Freys Helgasonar til AEK Aþenu. Enn á ný fær ungur og efnilegur leikmaður, sem uppalinn er í Breiðabliki, tækifæri á að fara út í atvinnumennsku og láta drauma sína rætast. Það er til marks um markvisst og gott uppeldisstarf knattspyrnudeildar Breiðabliks enda hefur að jafnaði einn leikmaður Breiðabliks haldið utan í atvinnumennsku á ári síðastliðin sex ár.
Betur hefði mátt fara í fáeinum atriðum varðandi félagaskipti Elfars og telur knattspyrnudeild Breiðabliks að brotið hafi verið á rétti hennar hvað varðar eðlilegt ferli og samskipti um félagaskipti leikmanna. Það verður þó ekki látið skyggja á þennan gleðilega atburð og óskar knattspyrnudeild Breiðabliks Elfari velgengni á nýjum vettvangi.
Stjórn Knattspyrnudeildar Breiðabliks