Þrátt fyrir að á móti blási hjá Blikaliðinu þá ætlum við stuðningsmenn ekki að láta deigan síga. Ákveðið hefur verið að
efna til hópferðar á leikinn gegn Þór á Akureyri á sunnudaginn. Lagt verður af stað á einkabílum frá Smáranum á sunnudagsmorguninn
kl.10.00. Þeir sem hafa áhuga á að fara með eru beðnir að senda tölvupóst á .(JavaScript must be enabled to view this email address)
Okkur vantar hugsanlega nokkra bílstjóra með bíl og eru þeir sem hefðu áhuga á því að leggja okkur lið beðnir að senda okkur skeyti á sama netfang.
Blikaklúbburinn greiðir bensínpening þannig að menn þurfa ekki að bera beinan kostnað af ferðinni. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á því
að styðja við bakið á strákunum okkar að melda sig í ferðina. Nú reynir á að við Blikar stöndum saman!
Fjölmennum til Akureyrar og náum í þessi stig sem okkur vantar til að tryggja okkur í deildinni!
Blikaklúbburinn