Valskonur í heimsókn

26.08.2011

Blikastúlkur öttu kappi við Valskonur í Pepsídeildinni í gær. Leikurinn var bragðdaufur og hvorugt lið að sýna sínar bestu hliðar. Fyrstu 20 mínúturnar voru tíðindalitlar fyrir utan eina sendingu Valsstúlkna inn í teig Breiðabliks sem fór í þverslánna. Hvorugt liði náði að skapa sér almennileg færi en Valsarar voru þó með undirtökin.

Blikar fengu dauðafæri á 21. mín. þegar Þórdís Hrönn  skaut framhjá fyrir opnu marki eftir flottan undirbúning frá Ástu Eir. Strax í næstu sókn fengu Valsarar hættulegt. Aðeins mínútu seinna fengu Blikar annað dauðafæri og Valsarar þurftu að verja á línu eftir að boltinn fór yfir markvörð Vals.Næstu mínútur voru Blikastúlkur mun beittari í sínum sóknarleik og áttu fín færi sem þeim tókst þó ekki að nýta. Fyrsta mark leiksins kom á 30. mínútu frá Hólmfríði Magnúsdóttur. Fleiri urðu mörkin þó ekki og staðn 0-1 í hálfleik.

Seinni hálfleikur var afar bragðdaufur lengst af. En eftir um 25 mínútna leik fóru Blikar að sækja að marki Vals af meiri hörku en áður og sköpuðu sér nokkur fín færi sem þeim tókst þó ekki að nýta. Kristín Ýr Bjarnadóttir kom Val í 2-0 með skalla á 76. mín. Valsarar fengu svo sannkallað dauðafæri þegar Kristín Ýr komst ein á móti markmanni eftir góða stungusendingu frá Hildi Antons en skot hennar fór í stöngina.  Eftir þetta róaðist leikurinn og lítið markvert gerðist fyrr en Björk kom Valskonum í 0-3 á 85. mín. eftir að Birna markmaður missti boltann út í teig. Blikar gáfust þó ekki upp og á 91. mín.skoraði Fanndís og minnkaði muninn eftir fyrirgjöf frá Þórdísi Hrönn.

Lokatölur leiksins 1-3 fyrir Val. Valsstúlkur voru með undirtökin nánast allan leikinn en Blikar áttu þó nokkra fína spretti og góð færi sem þær náðu ekki að nýta.

 





<- Til baka