Blikarnir 5 sem eru í U17 ára landsliðinu eru þeir, Gunnlaugur Birgisson, Adam Arnarson, Ósvald Jarl Traustason, Páll Þorsteinsson og Oliver Sigurjónsson sem nú er á mála hjá AFG í Danmörku. Íslenska liðið byrjaði á því að tapa í riðlinum 1-5 á móti Sviss en unnu síðan leikina á móti Ísrael og Grikklandi. Ísland endaði því í fyrsta sæti með 6 stig en Sviss var öðru sæti með 4 stig. Glæsilegur árangur hjá Blikum og Íslenska landsliðinu.