Tap í Noregi

13.07.2011

Mikil eftirvænting var eftir fyrsta leik Breiðabliks í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Ekki minnkaði umtalið um leikinn með allar spekúlasjónirnar með félagaskipti Elfars Freys til AEK Aþenu. Þá gátu þeir sem vildu séð leikinn í beinni útsendingu í gegnum internetið, sannarlega frábært að geta keypt sér slíka þjónustu og ekki þurfa að reiða sig á textalýsingar.

Ólafur Kristjánsson gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir leikinn og stokkaði vel upp í vörninni þegar ljóst var að Elfar myndi ekki spila þennan leik. Arnór Sveinn var settur í hafsentinn við hliðina á Kára Ársælssyni og Rafn Andri færður í hægri bakvörðinn í staðinn fyrir hann.

Byrjunarliðið var:

Kale

Rafn Andri - Arnór - Kári - Kristinn Jóns

Jökull - Gummi - Finnur

Tómas Óli - Dylan - Kristinn Steindórs

Blikar byrjuðu feykilega vel og sýndu Norsurunum enga virðingu fyrstu 8 mínútur leikins og fengu 2-3 ágætisfæri til að koma öllum (nema Blikum) að óvörum og lauma inn marki. En eftir þessar 8 mínútur tóku við 82 mínútur af einhverri almestu einstefnu liðs gegn mínu ástkæra Breiðabliksliði. Rosenborgarliðar léku sér hreinlega að Blikum allan leikinn og vorum við í raun stálheppnir að labba inn í hálfleik með aðeins 1-0 á bakinu. Reyndar kom markið á alversta tíma, markamínútunni 43 mín. Fram að því hafði Ingvar Kale í markinu haldið okkur inn í leiknum með frábærum vörslum og varnarlínan virtist hreinlega vera úti að aka stærsta hluta leiksins. Okkar helstu ógnir fram á við sáust ekki, ekki frekar en miðjumenn liðsins sem fengu ekki tíma til að athafna sig. Flestar sóknir Rosenborg komu upp hægri kantinn þar sem Kristinn Jónsson var ekki líkur sjálfum sér og virtist hreinlega ekki vera með.

Í síðari hálfleik hélt maður að Ólafur myndi ná að tala menn til og koma þeim skilaboðum til manna að í stöðunni 1-0 getur ýmislegt gerst. En gæðamunur liðanna var slíkur að við áttum okkur aldrei viðreisnar von, því miður.

Hvert skyndihlaup Norðmannanna rak annað og enduðu leikar þannig að Þrándheimsbúar skoruðu 4 mörk til viðbótar í síðari hálfleiknum og bundu nær endanlega fyrir vonarhnút þann sem við höfðum fyrir leikinn. 5-0 tap og það sanngjarnt í þokkabót er eitthvað sem erfitt er að kyngja en engu að síður nauðsynlegt. Menn verða að taka það góða úr þessum leik og koma með heim og vera trítilóðir í næsta deildarleik sem er strax á laugardaginn gegn Stjörnumönnum. Arnar Már kom frískur inn og var óheppinn að skora ekki þegar hann skaut boltanum í samkeytin fjær. Þar hefði hann betur legið inni Kristinn Steindórs var einnig óheppinn að skora ekki í fyrri hálfleik þegar hann átti fínt skot. Auðvitað áttum við okkar sénsa en þá verður að gjöra svo vel að nýta eigi að vinna svona Skandínavíska risa eins og Rosenborgarliðið er.

En keppninni í Evrópu er síður en svo lokið. Við eigum enn eftir að fá nojarana í heimsókn á Breiðabliksvöllinn og þar munum við sýna þeim úr hverju við erum gerðir. Það er alveg á kristaltæru. Við þurfum stuðning allra Blika og nærsveitunga og komum dýrvitlausir í þann leik og spilum hann til sigurs. Ég lofa því að leikmenn verða staðráðnir í að bæta fyrir þann slaka leik sem þeir sýndu í kvöld. Ég hreinlega neita að trúa því að getumunur liðanna sé þetta mikill.

GMS





<- Til baka