Sögulegur sigur í Evrópukeppninni

20.07.2011

Blikar unnu frábæran 2:0  sigur á hinu sterka liði Rosenborgar í forkeppni meistaradeildar Evrópu á Kópavogsvelli í kvöld. Það voru þeir Dylan Jakob Macallister og Kristinn Steindórsson sem settu mörk okkar pilta. Leikur Blikaliðsins var frábær og áttu Norðmenn eiginlega aldrei möguleika gegn léttleikandi Blikaliðinu.

Blikar byrjuðu mun betur í leiknum og sóttu nokkuð stíft fyrstu 10 mínútur leiksins án þess þó að skapa sér nein afgerandi færi. Norðmennirnir færðu sig þá framar og völlinn og pressuðu nokkuð á okkar drengi. En við hrundum öllum sóknum þeirra nokkuð örugglega. Það var síðan á 28. mínútu sem Kristinn Jónsson brunaði upp völlinn og náði að senda hárfínt á Dylan sem kláraði nokkur þröngt færi á frábæran hátt. Fyrsta mark Breiðabliks í Evrópukeppni staðreynd. Þetta var eins og köld vatnsgusa framan í frændur okkar frá Þrándheimi og var greinilegt að þessi óvænta mótstaða fór í taugarnar á þeim. Rétt fyrir leikhlé prjónaði Kristinn Jónsson sig í gegn og átti gott skot sem markvörður Norðmanna varði út í teiginn en Dylan náði ekki að nýta sér þokkalegt færi.

Blikar komu fullir sjálfstraust út í síðari hálfleikinn. Rosenborgardrengirnir áttu sjálfsagt ekki von á þessari mótstöðu og voru hikandi í sóknaraðgerðum sínum. Liðin skiptust á að sækja án þess þó að skapa sér opin færi. Það var  þó síðan á 82 mínútu sem vallarstarfsmaðurinn sókndjarfi, Kristinn Steindórsson, fékk flotta sendingu frá Dylan inn fyrir vörn gestann, fíflaði varnarmanninn upp úr skónum og sendi knöttinn í stöngina og inn. Þrátt fyrir nokkra pressu undir lok leiksins hélt Blikavörnin og einn óvæntasti sigur íslensk félagsliðs hin síðari ár var staðreynd.

Það var ekki nóg að þetta væru fyrstu mörk Breiðabliks í Evrópukeppni karla heldur var þetta líka fyrsti sigur íslensks lið í þessari keppni í tíu leikjum. Þar að auki var þetta fyrsti leikur Breiðabliks í sumar þar sem við fáum ekki á okkur mark! Við völdum ekki andstæðing af verri endanum til að ná því markmiði!

Erfitt er að gera upp á milli leikmanna Blikaliðsins í þessum leik. Þó verður að hrósa varnarmönnunum; Kára, Kristni, Arnóri , Jökli og Kale í markinu,  sem stigu vart feilspor í leiknum. Sérstaklega var Kristinn Jónsson góður og sýndi loksins hvað í þessum snjalla bakverði býr. Miðjumennirnir börðust geysilega vel og áttu þeir Guðmundur og Finnur í fullu tré við norsku atvinnumennina. Rafn Andri og  ungstirnið Tómas Óli hlupu mikið og studdu vel við vörnina. Það var líka unun að sjá boltatækni Tómasar Óla sem dansaði hvað eftir annað framhjá varnarmönnum Þrándheimaliðsins. Ekki má heldur gleyma markaskorurunum tveimur; Dylan og Kristni Steindórs. Dylan var eins og kóngur í háloftunum, hirti flesta skallaboltana, kom aftur, spilaði boltanum, ,,skrínaði” vel og lagði boltann á samherja sína hvað eftir annað meðal annars í markinu sem Kristinn gerði. Svo setti hann lika frábært mark eftir magnaða sendingu frá Kristni Jónssyni. Kristinn Steindórsson finnur alltaf fjölina á Kópavogsvellinum. Hann var sívinnandi allan leikinn og markið hans var tær snilld. Arnar Már, Andri Rafn og Viktor Unnar komu inn á sem varamenn undir lok leiksins og stóðu vel fyrir sínu. Sem sagt; nánast fullkominn leikur hjá Blikaliðinu.

Því miður voru áhorfendur ekki mjög margir í Kópavoginum í kvöld. En þeir sem mættu fengu svo sannarlega mikla skemmtun fyrir aurinn sinn. Það verður samt að hrósa Stuð-Blikum sem mættu vel og létu vel í sér heyra. Vonandi halda þeir áfram að mæta vel það sem eftir er sumars.

Það er ekki víst að allir geri sér grein fyrir því hve mikilvægur sigur þetta er fyrir Breiðablik og íslenska knattspyrnu. Rosenborg er stórveldi, ekki bara í Skandinavíu, heldur líka í Evrópu. Rosenborg varð fyrst bikarmeistari árið 1960 og síðan hefur félagið landað níu slíkum titlum. Liðið hefur unnið norsku deildina 22 sinnum, þar af þrettán ár í röð á árunum 1992 til 2004. Rosenborg tók þátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu ellefu sinnum á tólf árum frá 1995 til 2006. Á þessum árum  bar Rosenborg meðal annars sigurorð af liðum borð við AC Milan, Juventus og Real Madrid. Árangur Blikaliðsins er því frábær!

En það má gleyma sér í fagnaðarlátunum. Næsti leikur okkar drengja er gegn hinu sterka liði KR í Frostaskjólinu á sunnudaginn. Við þurfum að ná jafn góðum leik og í dag til að leggja þá röndóttu að velli.

Allir á völlinn og áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

AP





<- Til baka