Skagamenn mæta í Fífuna á laugardaginn

19.01.2012

Þeir gulklæddu eru nú aftur komnir upp á meðal þeirra bestu og er gaman að sjá þetta fornfræga lið á þeim stað þar sem það á heima. Blikaliðið lenti í töluverðu ströggli með fríska Keflvíkinga síðasta laugardag en náði samt að innbyrða karaktersigur með mörkum frá Elfari Árna Aðalsteinssyni og Sverri Inga Ingasyni.  Bakvörðurinn knái að norðan, Gísli Páll Helgason, spilaði sinn fyrsta leik með Blikaliðinu og stóð sig mjög vel. Þarna er greinilega hörkuknattspyrnumaður á ferðinni og vöktu löng innköst hans mikla athygli og sköpuðu talsverða hættu.  Elvar Aðalsteinsson skorar og skorar og greinilegt að nýju leikmennirnir falla vel inn í Blikaliðið. Sverrir Ingi og Finnur stóðu vaktina í miðju varnarinnar og stóðu sig vel. Ungur bakvörður úr 2. flokki, Hrannar Einarsson (Ólafssonar þjálfara), hefur staðið vaktina í hægri bakverðinum, í meiðslafjarveru Kristins Jónssonar, og hefur vakið athygli fyrir lipra boltameðferð og góðan leikskilning. Á miðjunni stóðu Andri Rafn Yoeman, Rafn Andri og Jökull vaktina og fóru vaxandi eftir því sem á leið í leiknum. Frammi barðist Guðmundur Pétursson vel að vanda og er greinilegt að komast í betra stand eftir alvarleg meiðsli. Kale var öruggur í markinu að vanda. Sindri Snær Magnússon lék sinn fyrsta leik á móti í græna búningnum og var gaman að sjáenn einn fjölskyldumeðlimin í þessum fallega búning! (systur hans tvær spila með Blikunum).

Meiðslalisti Blikaliðsins er enn nokkuð langur. Þeir sem hafa lítið sem ekkert spilað í vetur eru Haukur Baldvinsson, Olgeir Sigurgeirsson, Viktor Unnar Illugason, Árni Vilhjálmsson, Tómas Óli Garðarsson og Kristinn Jónsson. Einhverjir þeirra eru nú að ná sér og hugsanlega koma þeir við sögu gegn þeim gulklæddu á laugardaginn.

Við hvetjum því alla sem vettlingi geta valdið að mæta í Fífuna á laugardagin til að sjá Blikaliðið spila.

Áfram Breiðablik !





<- Til baka