Sætur sigur í síðasta leik sumarsins!

03.10.2011

Breiðablik tók á móti Stjörnunni í síðustu umferð Pepsideildar karla líkt og í fyrra, nú fór viðureignin fram á Kópavogsvelli. Stjarnan átti möuleika á að ná Evrópusæti ef að Eyjamenn myndu tapa á móti Grindavík í Eyjum.

Breiðbliksliðið leit vel út frá fyrstu mínútu í þessum leik. Góð vinnsla á miðjunni og mikið af góðum hlaupum hjá leikmönnum. Besti maður Breiðbliks á leiktíðinni Kristinn Steindórsson ógnaði stöðugt með hraða sínum, það voru um 40 mín liðnar þegar að hann geystist upp vinstri kantinn og lék framhjá varnarmanni Stjörnunnar. Kristinn átti glæsilega sendingu fyrir markið þar sem að Arnar Már var búinn að koma sér í góða stöðu og skoraði á móti sínum gömlu félögum. Það liðu ekki nema um 2 mínútur þá átti Kristinn aftur stórglæsilega sendingu og nú á Andra Rafn Yeoman sem að lét Ingvar verja frá sér en náði frákastinu og skoraði. Staðan 2-0 í hálfleik og miðað við yfirburði þeirra grænu þá hefðu sþeir getað verið búnir að skora 3 eða 4 mörk.

Stemmningin í stúkunni var búin að vera með besta móti og Silfurskeiðinni var svarað fullum hálsi af grænum stuðningsmönnum sem höguðu sér vel. En spurning er hinsvegar hvort að það hafi verið eitthvað annað en lýsi í Silfurskeiðinni? Andri Rafn komst einn í gegn í upphafi seinni hálfleiksins eftir frábæran undirbúning frá Kristni Steindórs en Ingvar í marki Stjörnunnar náði að verja vel. 5 mínútum síðar skoraði Stjarnan undarlegt mark en boltinn barst þá inn á teig og Baldvin Sturluson skoraði með skalla utan úr teignum. Mörgum fannst þetta gegn gangi leiksins.

10 mínútum síðar kom Arnar Már Blikum í 3-1 og enn eina ferðina var það Kristinn Steindórsson sem að lagði upp markið. Kristinn vann gríðarlega vel og lagði boltann fyrir Arnar sem átti lítið annað eftir en að leggja hann í markið, gott mark hjá Blikum. Blikarnir héldu áfram að pressa og Kristinn Steindórs hélt áfram að leggja upp góð markækifæri, næst var það Kristinn Jóns sem að komst einn í  gegn en Ingvar varði aftur vel.

Stjörnumenn gerði eftir þetta 2 breytingar á liði sínu en markakóngurinn Garðar Jóhannson fór af velli ásamt Bjarka Páli Eysteinssyni. Inn á fyrir þá komu þeir Víðir Þorvarðarson og Aron Grétar Jafetsson. Skipingarnar virtust hafa góð áhrif á Stjörnumenn því að um 2 mínútum síðar þá skoraði Halldór Orri mark beint úr aukaspyrnu og aðeins 2 mínútum síðar þá skoraði varamaðurinn Aron Grétar Jafetsson laglegt mark. Staðan skyndilega orðin 3-3 og 10 mínútur eftir af leiknum. Stjörnumenn áttu nú von um að komast í Evrópubolta á næsta ári þar sem að Grindavík var að vinna í ÍBV í Eyjum.

Blikar gerðu breytingu og Arnar Már markaskorari fór af velli og í hans stað kom inn Guðmundur Pétursson sem var glæsilegur að vanda. Mikil spenna myndaðist á síðustu mínútum leiksins og stúkan tók vel við sér. Silfurskeiðin þurfti þó að vera með smá vesen og grýtti aðskotalhutum í áttina að vellinum og varamannskýli Blikanna. Grindavík komst í 0-2 í Eyjum og enn magnaðist spennan.

90 mínútur voru komnar á klukkuna og Ingvar markmaður Stjörnumanna var farinn að taka þátt í sóknarleik Stjörnuliðsins svo mikil varbaráttan. Þegar að nokkrar sekúndur voru til leiksloka þá barst boltinn á Guðmund Pétursson sem komst einn í gegn á móti Ingvari í marki Stjörnumanna sem hafði haft fyrir því að koma sér aftur. Guðmundur átti eftir að gera helling en kláraði færið virkilega vel og sætur sigur Blika var staðreynd.

Virkilega skemmtilegur endir á íslandsmótinu sem hefur ekki alveg gengið eins og menn vonuðust eftir. Allt liðið spilaði vel í þessum leik, Kristinn Steindórsson fór á kostum og Arnar Már skilaði sínu vel. Kristinn Jónsson er augljóslega að finna sitt fyrra form og Finnur Orri tók sig vel út miðverðinum. Það var sætt að ná að hefna fyrir ósigurinn á móti grönnunum úr Garðabænum í fyrri umferðinni. Menn eru á því að það sé að myndast góður rígur við þá bláu úr Garðabænum og og það gleður mig, ekki er litla stórveldið úr Fagralundi líklegt til að mæta í úrvalsdeildina á næstunni.

Knattspyrnusumrinu 2011 er formlega lokið og við tekur vetur sem ætti að vera fullur af tækifærum fyrir Breiðablik. Menn þurfa að horfa á hópinn og meta stöðuna rétt, styðja við bakið á þjálfaranum og gera sitt allra besta til að koma til móts við hann og hans óskir í leikmannamálum. Við þurfum að halda okkar bestu mönnum, ef að þeir fá tækifæri til að fara út að spila þá er það hið besta mál fyrir þá en ef ekki þá vil ég ekki sjá að þeir fari í annað lið á Íslandi. Breiðablik á að geta keppt við þá bestu og verið á meðal þeirra bestu en þá þarf að halda rétt utan um málin og vinna saman að því markmiði sem allir stefna að. Það er að koma bikarnum aftur heim! 

KIG





<- Til baka