Sætur sigur í Árbænum!

22.08.2011

Það voru ekki nema 57 sekúndur liðnar af leiknum og undirritaður var ennþá að reyna finna stæði þegar að Fylkismenn komust yfir í leiknum. Ásgeir Örn Arnþórsson fór framhjá Tómasi Óla sem var í stöðu vinstri bakvarðar og náði að setja boltann af öryggi niður í hægra hornið framhjá Sigmari í markinu. Já Sigmar var í markinu stóð hann sig með prýði í leiknum en mikið var rætt í stúkunni hvers vegna Ingvar Kale væri á bekknum? 

Fyrri hálfleikurinn einkenndist af mikilli baráttu og það var ekki fyrr en í lokinn að eitthvað fór að gerast, þá átti Kári Ársælsson skot eftir klafs í teignum. Fyrirliðinn átti heldur betur eftir að koma við sögu í þessum leik. Seinni hálfleikurinn byrjaði og Árni Vilhálmsson sýndi Fylkismönnum strax að Blikar ætluðu að pressa betur og láta finna fyrir sér. 

Þeir grænu fóru að spila boltanum betur á milli sín og Finnur og Jökull náðu stjórn á miðjunni. Það var tæpur klukkutími liðinn af leiknum þegar að Blikar fengu hornspyrnu, Kári Ársælsson náði að skalla boltann að marki og mikil þvaga myndaðist. Guðmundur Kristjánsson eða Árni Vilhjálmsson náði að  koma boltanum af harðfylgi yfir línuna. Mismunandi er eftir miðlum hver er skráður fyrir markinu en samkvæmt leikskýrslu KSÍ þá er það Guðmundur Kristjánsson. Sama hvort að það var Guðmundur eða Árni þá var staðan 1-1 og léttist brúnin á Blikum í stúkunni. Skipti ekki máli hvort að þeir voru búnir að tuða stanslaust yfir fínum dómara leiksins eða ekki. 

Blikar gerðu 2 breytingar á liðinu með 5 mínútna millibili, Andri Rafn kom inn fyrir Rafn Andra og Arnar Már kom inn fyrir Árna Vilhjálmsson. Leikurinn var mjög opinn á síðustu mínútum og mikil barátta í gangi. Blikarnir voru hættulegri framávið og menn gerðu sitt besta í halda boltanum og sýna þolinmæði. Einstaka sendingarfeilar sköpuðu þó hættu sem sem að hefðu getað skilað Fylkismönnum marki.

Tíminn var að renna út en bæði lið sýndu að þau voru ekki tilbúin að sætta sig við jafntefli. Blikar sóttu og spiluðu upp völlin, markahæsti maður liðisins Kristinn Steindórsson vann vel frammi og skapaði hættu þegar hann fékk boltann. Það voru rúmar 2 mínútur eftir þegar að Íslandsmeistararnir fengu hornspyrnu, boltinn barst inn í teiginn og hver annar en fyrirliðinn og maður leiksins Kári Ársælsson skoraði glæsilegt mark með skalla. Fylkismenn náðu að ógna marki Blika á síðustu mínútunum en vörnin hélt og 3 stig fóru í Kópavoginn.

Breiðablik er nú komið í 6 sæti með jafn mörg stig og Fylkir en 5 stig eru í Stjörnuna sem er í 5 sæti. Gaman var að sjá liðið í kvöld og þá sérstaklega í seinni hálfleik þar sem að liðið sýndi ákveðni og grimmd. Tómas Óli var í vinstri bakverði í fjarveru Kristinns Jóns og leysti stöðuna þokkalega af hólmi, Guðmundur Kristjáns var í hægri bakverði og var að vanda sterkur. Vörnin virkaði traustari en í síðustu leikjum, miðjan með Jökull og Finn leit betur og betur út þegar að leið á leikinn.

Sóknartilburðir Blikar voru takmarkaðir þrátt fyrir mikið vinnuframlag en menn náðu ekki að sækja boltana sem að Dylan var að vinna í loftinu. Þetta var kveðjuleikur hjá Dylan en það þarf ekki að vera slæmt fyrir Blikana. Árni Vilhjálms sýndi það í dag að hann á fullt erindi í þessa baráttu. Bæði mörkin komu eftir föst leikatriði og það var óvenju sætt að sjá boltann detta inn á síðustu mínútum leiksins og Kári á hrós skilið fyrir baráttuna.

Næstu leikur á móti Val á Kópavogsvelli á sunnudaginn næsta klukkan 18:00. Valsarar töpuðu nokkuð sannfærandi 3-1 á móti Fram og eru 2 sætum fyrir ofan Breiðablik með 28 stig. Finnur Orri og Guðmundur Kristjánsson verða báðir í banni vegna 4 áminninga og Valsararnir Arnar Sveinn og Atli Sveinn verða einnig í banni. Mætum öll á völlinn og látum í okkur heyra en  reynum að sleppa því að tuða stanslaust yfir dómurum sem að öllu jafna eru að standa sig vel. 3 stig í hús í kvöld og ekkert annað í boði en að taka öll 3 stigin á móti Val!

 

KIG





<- Til baka