Í dag skrifaði Landsliðskonan Rakel Hönnudóttir undir tveggja ára samning við Breiðablik.
Rakel byrjaði að spila í meistaraflokki 15 ára gömul eða árið 2004. Hún hefur alla tíð leikið með Þór/KA (fyrstu árin með Þór/KA/KS) . Rakel hefur leikið 135 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 124 mörk sem verður að teljast frábær árangur
Hún hefur spilað 40 landsleiki og þar af 33 með A landsliðinu. í þessum leikjum hefur hún skorað 4 mörk þar af 2 fyrir A landsliðið.
Þrátt fyrir að Rakel sé ung að árum kemur hún með mikla reynslu og styrk inn í ungt og skemmtilegt lið Breiðabliks sem annað árið í röð mun eingöngu tefla fram Íslenskum leikmönnum. Við bjóðum Rakel hjartanlega velkomna í Kópavoginn.