Blikaklúbburinn stendur fyrir opnum fundi með Ólafi Kristjánssyni, þjálfara meistaraflokks karla, á fimmtudagskvöldið í næstu viku þ.e. fimmtudag 8.september kl.20.00. Ólafur mun þar fjalla um árangur liðsins í sumar og mönnum gefst tækifæri á því að spyrja þjálfarann spjörunum úr. Þessi fundur verður auglýstur betur síðar.
En það stendur heilmikið til um helgina. Meistaraflokkur kvenna spilar sinn síðasta heimaleik á þessu keppnistímabili á morgun laugardag kl.14.00 á Kópavogsvelli. Margar ungar og efnilegar stúlkur hafa verið að stíga sín fyrstu skref með flokknum og er gaman að sjá hve vel þessar stúlkur eru að standa sig.
Þriðji flokkur karla stendur líka í stórræðum og reynir að verja bikarmeistaratitilinn sinn í þessum aldursflokki í Kórnum á sama tíma. Andstæðingarnir eru Stjörnumenn úr Garðabænum. Þessi lið eru í efstu sætum A-riðils 3. flokks þannig að búast má við hörkuleik. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið til að mæta og hvetja Blika til sigurs.
Áfram Breiðablik!
Blikaklúbburinn