Hlynur Eiríksson hefur verið ráðinn til félagsins sem þjálfari í meistaraflokki kvenna. Hlynur hefur starfað við þjálfun í hátt í 25 ár og hefur lokið KSÍ A þjálfunarprófi. Hlynur Þjálfaði lið Þórs/KA síðastliðið sumar og verður við stjórnvölin þar þangað til þátttöku þeirra í Evrópukeppninni lýkur. Breiðablik býður Hlyn hjartanlega velkomin til starfa hjá félaginu.