Nýr framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar

18.11.2011

Atli Sigurðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks.  Atli er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með mikla stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu einkum á sviði sölu- og markaðsmála á fyrirtækjamarkaði. Atli hefur einnig tekið þátt í félagsstörfum og var meðal annars formaður foreldrafélags Kársnesskóla og gjaldkeri Samkóp um tíma. Atli er kvæntur Sigrúnu Andersen og eiga þau þrjú börn.  Atli tekur við starfinu 21. nóvember af Svavari Jósefssyni, Svavar mun starfa við hlið Atla út desember.

Áfram Breiðablik!





<- Til baka