Það er sennilega enginn Bliki í heiminum sem er ekki búinn að frétta af úrslitum gærdagsins. Sá leikur fer ekki í sögubækurnar sem okkar besta frammistaða og óþarfi að tíunda þann harmleik hér. Það eina sem liggur fyrir er að það eru tveir leikir framundan og það er útilokað annað en að okkar menn mæti beittari til leiks í þá. Við förum til Akureyrar og nú er ekkert annað í stöðunni en að standa saman.
Í gegnum súrt og sætt! Áfram Breiðablik!