Næst er það Keflavík.

14.09.2011

Blikaliðið hefur ekki verið að ná nægilega góðum úrslitum í síðustu leikjum, misstu unnin leik á móti Val niður í jafntefli og töpuðu síðan á móti Fram í síðasta leik. Síðasti sigurleikur liðsins var á móti Fylki í Árbænum þar sem að fyrirliðinn Kári Ársælsson steig upp og skoraði sigurmarkið á lokamínútum leiksins eftir að liðið hafði lennt undir.

Það er augljóst að hópurinn er of þunnur og meiðsli í hópnum gera það að verkum að margir leggja það á sig að spila ekki sýnar réttu stöður. Óli þjálfari er búinn að vera rótera í stöðu hægri bakvarðar en  ekki hefur tekist að finna neinn sem hentar þar inn. Jökull, Tómas Óli og Gummi Kristjáns eru á meðal þeirra sem að hafa prófað. Árni Vilhjálms byrjaði frammi í síðasta leik á móti Fram en náði ekki að setja marki sitt nægilega vel á leikinn, hefði þó getað gert það.

Leikurinn á móti Keflavík er snemma eins og öll umferðin, hann hefst klukkan 17:15 og Blikar fjölmenna að sjálfsögðu á völlinn. Menn í stúkunni ætla að þjappa sér saman og láta vel í sér heyra, hvetja Íslandsmeistarana áfram í þessum síðustu leikjum mótsins. Mætum öll sem vettlingi geta valdið og látum í okkur heyra, það gæti skipt höfuð máli þegar að uppi er staðið.

ÁFRAM BREIÐABLIK!





<- Til baka