Til að halda úti öflugum meistaraflokki er nauðsynlegt að fá fólk til ýmissa starfa. Hingað til hefur það verið algengt að fólk komi til starfa og hreinlega drukkni í verkefnum. Við viljum gera breytingu á þessu með því að skipta niður verkefnunum þannig að fólk geti tekið þátt í án þess að eyða öllum sínum tíma í vinnu fyrir félagið. Á heimasíðu Breiðabliks má sjá skiptingu í fenfdir og verkefni hverrar nefndar.
Við auglýsum því eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í starfi nefnda á vegum ráðsins. Þetta er skemmtilegt starf með skemmtilegu fólki þannig að við hvetjum alla áhugasama um að senda póst á .(JavaScript must be enabled to view this email address). fyrir 22. október og láta vita í hvaða nefndum viðkomandi hefði áhuga á að starfa. Hlökkum til að fá ykkur til samstarfs.