Markametið fallið

09.07.2011

Sem Íslandsmeistarar hafa okkar menn verið töluvert í umræðunni í sumar og þá helst fyrir skrykkjótt gengi. Liðið er komið á þann stall að hikst á sigurgöngu telst til tíðanda og það er bara gott. Fyrir leikinn gegn piltunum úr Þorpinu á Akureyri í dag sátu okkar menn í 7. sætinu og nauðsynlegt að ná sigri til að klifra ofar.

Okkar menn byrjuðu betur og voru, eins og oft áður, meira með boltann. Vandamálið í sumar hefur ekkert endilega verið skortur á mörkum heldur frekar að boltinn fer of oft í netið hjá okkur. Það var því hressandi þegar fyrirliði vor, Kári Ársæls, stangaði knöttinn í netið eftir hornspyrnu á 25. mínútu. Brúnin lyftist enn hærra á mönnum þegar hreystimennið Guðmundur Kristjánsson stýrði þeim hnöttótta í netið rétt fyrir hálfleik. 2-0 fyrir Blika og útlit fyrir notalega stund í hálfleiknum á meðan leikmenn fengju sér tesopa.

Það var því grautfúlt að sjá gestina skora á síðasta andartaki hálfleiksins. Öngva doktorsgráðu þarf til að benda mjög gáfulega á að það flækir málin töluvert að fá á sig 2 mörk í hverjum leik. Við fengum 23 mörk á okkur í 22 leikjum í fyrra - fyrir leikinn í dag voru þau orðin 16 en leikirnir aðeins 9.

Eins og við var að búast hresstust gestirnir við þetta og voru Þórsarar ekki langt frá því að jafna í byrjun síðari hálfleiks. Hörðustu Blikar gripu andann á lofti í hvert sinn sem tuðran sveif inn í teig voran. Blikar voru samt sprækir fram á við og mátti allt eins búast við að þeir grænklæddu gerðu út um leikinn. Það var því fagnað vel og lengi þegar Rafn Andri, sem virðist safna stoðsendingum þessa dagana, spyrnti knettinum þéttingsfast á fjærstöng þar sem hinn stóri og stæðilegi andfætlingur vor, Dylan Macalister, stýrði blöðrunni í netmöskva gestanna með góðri kollspyrnu! 3-1 fyrir okkar pilta. Gott að sjá Rafn Andra, sem kom til okkar frá þeim röndóttu úr Sæviðarsundi, kominn í gang eftir meiðslin sem héldu honum frá öllum kappleikjum í fyrra.

Eftir þetta var leikurinn í öruggum höndum og var honum lokað með marki frá hinum heita Kristni Steindórs sem setti boltann í netið eftir skalla Dylans. Kristinn er markahæstur í deildinni með 9 mörk og það sem meira er - hann er orðinn markahæsti leikmaður Breiðabliks í efstu deild frá upphafi, með 32 mörk. Hann fór upp fyrir Sigurð Grétarsson með þessu marki, það met hafði staðið í 28 ár!  Það má segja að Sigurður hafi skorað 30 mörk í 56 leikjum (síðasta markið kom svo 1999 þegar hann lék í 2 ár sem varnarmaður). Kristinn notaði 68 leiki til að komast í 30 mörkin. Þessu er nú bara slegið fram svona til gamans. En hann er ugglaust ekki hættur enda sjóðheitur um þessar mundir.

Næsti leikur okkar mann er gegn nágrönnum okkur í Stjörnunni á gervigrasi þeirra. Síðasta heimsókn okkar þangað var söguleg í meira lagi og hér með spáir greinarhöfundur því að liðið hrökkvi endanlega í gang í þeim leik og fikri sig enn ofar á töflunni.

Smá hugvekja í lokin.Við stuðningsmenn megum ekki gleyma okkur í velgengni síðustu ára - og sjálfsagt gera það fæstir. Það er ekki sjálfgefið að titill vinnist á hverju ári. Þó það hafi aðeins blásið á móti í sumar þá er ballið engan veginn búið enda mótið ekki hálfnað enn. Gott run mun fleygja okkur í toppbaráttu áður en andstæðingarnir geta snúið sér við. Það eru ekki mörg ár síðan að klúbburinn var í ströggli með að festa sig í sessi í efstu deild og það liggur alveg ljóst fyrir að við höfum á afar góðu liði að skipa sem hægt er að brýna til góðra verka - ekki síst með góðum stuðningi gallharðra Blika.

Áfram Breiðablik hérna.

GSG


 





<- Til baka