Lífsnauðsynlegur sigur gegn Keflavík

27.06.2011

Blikar náðu að hrista af sér slyðruorðið með gríðarlega góðum sigri á baráttuglöðum Keflvíkingum. Blikar höfðu fengið rækilega á baukinn eftir neyðarlegt tap gegn Bí/Bolungarvík í bikarnum örfáum dögum áður. Menn voru búnir að afskrifa liðið og dæma þá til botnbaráttu. NEI TAKK, þetta er ekki eitthvað sem Ólafur þjálfari Kristjánsson og sveinar hans í Breiðablik eru tilbúnir að taka þátt í.

Byrjunarliðið í kvöld var svo skipað

Sigmar í markinu

Jökull-Elfar-Kári-Arnór

Finnur-Guðmundur

Rafn Andri-Olgeir- Kristinn Steindórs

Dylan

á bekknum voru:

Vignir, Sverrir, Yeoman, Arnar Már, Árni Vill, Höskuldur og Pavlov

 

Blikar byrjuðu leikinn af miklum krafti og áttu nokkur álitleg færi en það kom þó í hlut gestanna að taka forystuna í leiknum. Hilmar Geir Eiðsson slapp í gegn eftir að Guðmundur Steinarsson náði að flikka boltanum inn fyrir. Sigmar náði ekki að verja í þetta skiptið.

Rauðspjaldafiskarinn, Guðjón Árni, var á sínum stað í Keflavíkurliðinu og hann byrjaði á því að fara í grófa tæklingu á Arnóri Sveini og eins og lög gera ráð fyrir þá komu Blikar aðvífandi til að stjaka við brotamanninum og láta hann vita að svona fótbrotstæklingar eru ekki vel séðar. Finnur Orri andaði létt á Guðjón Árna og hann féll með miklum tilþrifum og svo gerðust bekkjarbúar gestanna svo kræfir að heimta rautt spjald á Finn. Brandari útaf fyrir sig og einkar vandræðalegt fyrir suðurnesjamenn.  En hvað um það áfram héldu leikar og Blikar náðu að jafna metin þegar Dylan McAllister átti sendingu fyrir á Kristin Steindórs sem nennir ekkert að hætta að skora og var því hárréttur maður á laukréttum stað til að koma blöðrunni fram hjá Ómari í markinu (keimlíkur Simma)

Staðan í hálfleik 1-1 og Gillzenegger labbaði inn á og lét ungblika sparka bolta í spjald sem olli því að sá "þykki" var blautur upp fyrir haus. Afar skemmtilegt þetta.

Þegar vallargestir voru búnir að snarla sig upp og drekka kaffið var mál að halda áfram með kappleikinn.

Síðari hálfleikur var ekki sá fjörugasti sem undirritaður hefur séð en eitt mark leit þó dagsins ljós. Blessunarlega var það enn eitt markið frá K.S. aftur var það Ástralska undrið sem gaf stoðsendingu á Kristin. Markið var nánast eins og mark Keflvíkinga. Sending fyrir aftan miðju á framherja sem kemur boltanum áfram á kantmann sem klárar með stæl. 8 mark Kristins í sumar og hann eins og áður segir sjóðandi steamy.

Lokastaða 2-1 fyrir Blika sem eru komnir á beinu brautina fullyrði ég. Nú er hver leikur úrslitaleikur hjá okkur.

Bestu menn vallarins voru Kristinn Steindórs, Elfar Freyr og Sigmar.

GMS





<- Til baka