Kiddi skoraði í sínum fyrsta leik

29.01.2012
Kristinn Steindórsson og Guðj+on Baldvinsson skoruðu báðir sín fyrstu mörk fyrir Halmstad þegar liðið tapaði 3-2 gegn danska liðinu FC Nordsjælland í gær. Nordsjælland komst í 3-0 strax eftir tólf mínútur áður en Guðjón minnkaði muninn í 3-1 með marki úr vítaspyrnu á 24. mínútu. Kristinn opnaði síðan markareikning sinn með laglegu skoti í síðari hálfleiknum og lokatölur 3-2. Guðjón og Kristinn voru báðir í byrjunarliði Halmstad en þeir fóru af velli undir lok leiks.
 
Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina
 

 





<- Til baka