Breiðablik og FH skildu jöfn 2:2 í hörkuleik í Fífunni í dag. Ólafur tefli fram ungu og efnilegu liði sem spilaði skínandi bolta gegn sterku liði Fimleikafélagsins. Af eldri og reyndari mönnum liðsins sem voru með síðasta sumar voru það einungis Rafn Andri, Finnur Orri, Jökull og Simmi markvörður sem spiluðu þennan leik. Mörk Blikaliðsins settu Elfar Árni Aðalsteinsson og Stefán Pálsson, ungur leikmaður frá ÍR, sem hefur æft með okkur að undanförnu.
Blikar náðu forystunni í fyrri hálfleik þegar Elfar Árni náði að koma knettinum í mark Hafnarfjarðarliðsins eftir frábæran undirbúning Andra Rafns Yoamans. Elfar hefur nú skorað í báðum leikjunum frá því að hann skrifaði undir hjá okkur. FH jafnaði í byrjun síðari hálfleiks. Þá var komið að frábærum kafla hjá Stefáni Pálssyni, ungum og efnilegum 2. flokksleikmanni sem kom inn á sem varamaður eftir leikhlé. Hann byrjaði á því að fiska víti á frábæran hátt; vippaði knettinum yfir tvo varnarmenn FH-inga þannig að þeir sáu ekki annan kost en að bregða honum. Því miður lét Rafn Andri Haraldsson verja frá sér vítið en Stefán setti þá knöttinn í netið skömmu síðar eftir góða fyrirgjöf frá Hilmari Bjartmarssyni.
Mikil barátta einkenndi leikinn eftir þetta. Ólafur gaf enn fleiri leikmönnum tækfæri og áttu þeir allir ágæta innkomu. Jökull sýndi góð tilþrif þegar hann skaut í slána af löngu færi en undir lokinn pressuðu gestirnir á okkur. Það endaði með því að þeir náðu að jafna skömmu fyrir leikslok. Í heildina voru það líklegast sanngjörnustu úrslitin.
Margir ungir og efnilegir leikmenn f engu að spreyta sig í Blikaliðinu í dag. Þrátt fyrir það er óhætt er að segja að þetta hafi verið einn besti leikur liðsins til þessa á undirbúningstímabilinu. Boltinn flaut vel frá öftustu línunni og Simmi stóð varði oft vel í markinu. Finnur Orri bar fyrirliðabandið með stolti og stóð sig eins og herforingi í vörninni. Með honum í öftustu víglínu voru þrír vígamenn úr 2. Flokki; Höskuldur Gunnlaugsson, Hrannar Einarsson og Sverrir Ingi Ingason. Á miðjunni voru Jökull og Andri Rafn mjög góðir. Sérstaklega verður að hrósa Andra Rafni fyrir frábæran leik og mikla yfirferð. Rafn Andri lét finna vel fyrir sér og virðist hann smám saman vera að finna sitt gamla form. Í framlínunni var gaman að sjá Guðmund Pétursson spila einn hálfleik. Hann stóð sig ágætlega og kom boltanum vel frá sér. Elfar Árni var sífellt ógnandi og gaman sjá hve vel hann virðist falla vel inn í Blikaliðið. Guðmundur Kristjánsson og Þórður Steinar hvíldu að þessu sinni.
Meiðslalisti Blikaliðsins er nokkuð langur. Kristinn Jónsson á við álagsmeiðsli að stríða í baki og spilar ekki næstu 1-2 mánuði, Kristinn Steindórsson fór í endajaxlaaðgerð og er að jafna sig á þeirri aðgerð, Tómas Óli, Árni Vilhjálms og Viktor Unnar eru enn að jafna sig eftir tognanir. Góðu fréttirnar eru þær að ,,rakettan“ Haukur Baldvinsson er farinn að geta hlaupið án sársauka þannig að hugsanlega verður hann kominn á fullt eftir áramótin.
Í heild getur Blikaliðið verið mjög ánægt með þenann leik. Ungu strákarnir gáfu leikreyndu FH-liðinu ekkert eftir og settu skemmtilega pressu á Óla þjálfara varðandi liðsuppstillingu í næstu leikjum.
Áfram Breiðablik!