Jafnt gegn Valsmönnum: Umfjöllun

28.08.2011

Blikar mættu Valsmönnum í sannkölluðum haustveðursleik á Kópavogsvelli. Blikar þurftu á sigri að halda til að gera lokatilraun til að blanda sér í baráttuna um Evrópusæti og Valsmenn þurftu nauðsynlega á sigri að halda ívið toppliðin.

Byrjunarlið Blika:

Sigmar

Tómas Óli - Kári - Þórður Steinar - Kristinn Jóns

Jökull- Rafn Andri - Andri Rafn

Arnar Már - Árni Vill - Kristinn Steindórs

Síðast þegar þessi lið mættust á Kópavogsvelli buðu Blikar upp á flugeldasýningu og unnu 5-0 það var annað upp á teningnum í þessum leik. Völlurinn var blautur og þungur og reyndist mönnum erfitt að spila boltanum á milli sín svo vel gæti talist.

Fyrstu mínúturnar einkenndust af mikilli baráttu og voru Valsmenn örlítið beittari fram á við en án þess að skapa sér nein sérstök færi. Það var ekki fyrr en eftir um það bil 30 mínútur að leikar fóru að æsast.Blikar höfðu fram að þessu treyst á skyndisóknir en núna var komið að okkar mönnum að fara með stjórnina í leiknum. Hinn ungi Árni Vilhjálmsson var í fremstu víglínu og var gríðarlega duglegur í þessum leik og lét varnarmenn og raunar miðjumenn líka  finna vel fyrir sér allan leikinn. Hann sýnda lipra takta á 30 mínútu og gott ef hann notaði ekki gömlu góðu tánna til að reyna að setj'ann en Haraldur í Valsmarki náði að verja.

Andri Rafn Yeoman skoraði fyrsta markið á 37. mínútu leiksins eftir hamagang og klafs í teig Valsara. Glæsilega afgreitt hjá Yeoman sem var jafnbesti leikmaður Blikaliðsins í dag.

Á 41. mín átti Arnar Már fínt skot af löngu færi en boltinn naumlega yfir markið. Skömmu síðar þurfti Arnar að fara meiddur af velli og inn kom Olli Sig.

Eftir hlé færðist örlítið meira líf í leikinn og greinilegt að Valsmenn voru staðráðnir í að jafna og eins að Blikar vildu bæta í. Þrátt fyrir mikinn ákafa úti á vellinum hjá liðunum skilaði það sér ekki í einhverjum blússandi sóknarleik. Mikið var um darraðardans og miðjupústra. Eins og vaninn er þegar völlurinn er blautur þá henda menn sér í nokkrar breskar tæklingar. Flestar þeirra heppnuðust reyndar ágætlega í dag og enginn alvarlega slasaður eftir leikinn.

Maður hélt að Blikar væru að sigla heim með sigurinn og landa þar með þremur mikilvægum stigum en Guðjón Pétur fiskaði afar afar afar ódýra aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Sannkallaður ís með dýfu. Spyrnuna tók hann sjálfur og skoraði a la Rooney beint í markvinkilinn og jafnaði metin þegar 90 mínútur voru komnar á vallarklukkuna.

Erlendur dómari flautaði svo til leiksloka og niðurstaðan 1-1 jafntefli sem bæði lið eru væntanlega ósátt með en geta og verða að sættast á. Það er margt jákvætt í leik liðsins og má byggja á því fyrir næsta leik sem er á Laugardalsvelli gegn Frömmurum sem virðast vera vaknaðir úr rotinu sem þeir hafa legið í í sumar. Varnarleikurinn í dag var hreint með ágætum og voru Valsarar ekki að skapa sér nein sérstök færi sem heitið getur. Reyndar var Kolbeinn Kárason framherji Valsara á köflum hættulegur og skaut meðal annars í stöng en fleira var það ekki. Hálfnafnarnir á miðjunni hjá Blikum, Andri Rafn og Rafn Andri, sýndu fína takta í kvöld og verður spennandi að fylgjast með þeim í næstu leikjum. Kristinn Jóns var flottur í vinstri bakverðinum þrátt fyrir að vera ströggla við meiðsli, hann er úr grjóti. Sigmar "safe hands" Sig stóð sig með prýði í markinu. Tómas Óli kann betur við sig á kantinum en í hægri bakverði en hann leysti sína stöðu með sóma í dag. Kristinn Steindórs var ólíkur sjálfum sér í dag og hann getur mikið betur. Olgeir er alltaf rock solid fyrir Blikana. 

Maður leiksins í dag var Árni Vilhjálmsson sem barðist eins og grenjandi ljón allan leikinn og sýndi að menn eru hungraðir og vilja meira.

GMS





<- Til baka