Jafnir vinningar suður með sjó

16.09.2011

Okkar piltar renndu suður með sjó í gærkveld og öttu kappi við heimapilta í Keflavík á blautum Nettóvellinum. Fyrir leikinn voru sveitirnar jafnar að stigum - með 20 punkta hvor en Suðurnesjamenn eiga leik inn gegn Vesturbæingum. Það var augljóst að hvorugt liðið hafði áhuga á að gefa frá sér stig og voru leikmenn glerharðir í návígjum.

Tómas Óli tók sig til eftir um 20 mínútur og sendi knöttinn í netið hjá heimamönnum með lúmsku skoti úr teignum eftir laglegan samleik Blika. Hans fyrsta mark í efstu deild.

Rétt fyrir hálfleikinn náði heimamenn að jafna með skoti fyrir utan teig sem breytti um stefna af varnarmanni okkar. Það ætlar ekki að ganga að halda hreinu í sumar.

Seinni hálfleikurinn var fjörugur mjög og bæði lið sköpuðu hættuástand við mark hvors annars. Þaðan sem undirritaður sat fannst manni meiri sóknarþungi hjá okkur Blikum þó ekki hafi borið mikið á milli. Þeir Kristinn Jónsson og Steindórsson voru báðir nálægt því að setja mark og Tómas Óli setti knöttinn í þverslánna af stuttu færi en ekki náðist að koma þeim hnöttótta yfir línuna. Keflvíkingum tókst það ekki heldur og höfðu liðin því jafna vinninga.

Sigur hefði komið báðum liðum úr allri hættu en við verðum að þiggja þetta stig og tryggja okkar sem flest í næstu þremur leikjum. Við eigum eftir að mæta Víkingum og Stjörnunni á heimavelli og svo Þórsurum í Þorpinu. Með sömu baráttu og í gær þá sækjum við þá punkta sem þarf til og rúmlega það.





<- Til baka