Í lok janúar fer í gang nýr getraunaleikur hjá Breiðablik með fjölda glæsilegra vinninga. Smella hér til að skoða auglýsingu vegna leiksins.
Leikurinn verður keyrður á vefnum á síðunni http:\\tippleikur.is Það eina sem þarf að gera er að fara inn á vefinn velja nýskráning og skrá inn hóp.. Leikurinn verður sérlega glæsilegur, það verða vinningar í hverri viku ásamt veglegum verðlaunum fyrir fyrstu 3 sætin. Fyrstu verðlaun er helgarferð til Evrópu fyrir tvo, í önnur verðlaun er gisting á Hótel Rangá fyrir tvo með öllu tilheyrandi og í þriðju verðlaun er út að borða á UNO fyrir að minsta kosti 2. Og sigurvegarinn fær að sjálfsögðu Getraunabikarinn góða til varðveislu í hálft ár.
Endilega allir að vera með og hvetja aðra í kringum ykkur til að taka þátt.
Ef það eru einhverjar spurningar þá endilega hafið samband við okkur á netfangið 1x2"hjá"breidablik.is
Við minnum á getraunastarfið í alla laugardagsmorgna í Smáranum.
Áfram Breiðablik !
P.S. Minnum á strákaleik Breiðabliks og Keflavíkur í fótbolta.net mótinu á morgun laugardag í Reykjaneshöllinni kl.10.00.