Heimildamynd um sögu knattspyrnudeildar Breiðabliks komin út!

12.12.2011

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur ráðist í það stórvirki að láta framleiða heimildarmynd um deildina. Marteinn Sigurgeirsson tók verkið að sér en hann hefur kvikmyndað af og til starfsemi deildarinnar undanfarna áratugi.

Það má með sanni segja að Kópavogur sé knattspyrnubær og á knattspyrnudeild Breiðabliks mjög stóran þátt í því. Í þessari glæsilegu heimildarmynd er fjallað um sögu deildarinnar frá upphafi og aðstöðu til knattspyrnuiðkunar í bænum frá fyrstu árum.

Breiðablik var stofnað árið 1950 og deildaskipting var tekin upp 1957. Sparkvellir og tún voru víðsvegar um bæinn þar sem krakkar léku sér í fótbolta á þessum árum, jafnvel voru göturnar notaðar enda ekki mikið um bíla. Fyrsti völlurinn var malarvöllurinn í Vallargerði sem var ólöglegur þegar meistaraflokkur vann sig upp í efstu deild 1970 og varð því að keppa á Melavellinum í Reykjavík þar til grasvöllurinn kom loks í Kópavogsdal 1975. Fyrsta íþróttahúsið var lítill íþróttasalur sem byggður var við Kópavogsskóla um 1960. Í dag búa Kópvogsbúar við glæsilegustu íþróttamannvirki landsins.

Í myndinni er einnig fjallað um Íslandsmótin og sigrana. Símamótunum og knattspyrnuiðkun yngri flokka eru gerð góð skil. Þá hefur mikið frumkvöðlastarf í knattspyrnu kvenna verið unnið í Breiðabliki og er Breiðablik eina félagsliðið sem hefur verið með meistaraflokkslið í Íslandsmóti kvenna frá upphafi. Afraksturinn hefur líka verið góður þar sem liðið hefur margoft í gegnum tíðina orðið Íslands- og bikarmeistari. Sögu knattspyrnudeildarinnar hin síðari ár er einnig gerð góð skil og er þar á meðal fjallað um glæsta sigra meistaraflokks karla.

Allt þetta og margt fleira er að finna í þessu tímamótaverki. Að auki eru fjölmörg viðtöl við þá sem ruddu brautina sem gefur góða innsýn í tíðarandann og þær hindranir sem menn urðu að yfirstíga.

Hér er á ferðinni verðugt menningarefni sem fylgir sögu bæjarins og fjölbreyttu félagslífi.

Heimildarmyndin er til sölu í Smáranum og hjá yngri flokkum knattspyrnudeildar Breiðabliks. Smellið hér til að sjá sýnishorn.

Myndin kostar þrjú þúsund krónur og er það gjafverð fyrir þessa skemmtilegu mynd.

Blikaklúbburinn





<- Til baka