Haldið í Árbæinn

21.08.2011

Strákarnir okkar í meistaraflokknum halda í dag mánudag í Árbæinn til að etja kappi við appelsínugula heimadrengi í Fylki. Leikurinn hefst kl.18.00 á Fylkisvellinum og hvetjum við alla Blika, bæði nær og fjær, að mæta til að styðja okkar drengi til sigurs. Blikaliðið mætir eitthvað breytt frá undanförnum leikjum því Arnór Aðalsteinsson er farinn í víking til Noregs og Kristinn Jónsson á við meiðsli að stríða. Það er þó ekki útilokað að sá síðarnefndi geti spilað leikinn. Dylan er mættur eftir snögga ferð til Noregs og kemur frískur inn í leikinn. Þetta verður hins vegar síðasti leikur hans í bili að minnsta kosti með Blikaliðinu því hann er búinn að gera samning við lið í heimalandi sínu Ástralíu.

Langt er síðan Blikaliðið landaði sigri síðast og eru strákarnir staðráðnir í því að stöðva þessa leiðindaþróun. Mikill hugur var í þeim á æfingu í gær og miðað við uppstillingu Ólafs þjálfara má búast við einhverjum óvæntum breytingum á byrjunarliðinu. Það er því full ástæða fyrir Kópavogsbúa að mæta á leikinn grænklædda og styðja strákana til sigurs.

Áfram Breiðablik, alltaf, alls staðar!





<- Til baka