Mbl. sjónvarp með Gunnar fréttamann í broddi fylkingar var í Kópavoginum á laugardaginn. Vel var gert við hann í mat og drykk enda erum við Blikar yfirleitt höfðingjar heim að sækja. Gunnar var ánægður með aðstæður þótt hitinn færi frekar illa í hann. 4:1 sigur okkar manna á lánlausum Norðanmönnum var hins vegar verðskuldaður og fleytti okkar hraðbyri upp töfluna. Nú eru strákarnir okkar á leið til Noregs þar sem þeir mæta hinu geysisterka liði Rosenborg frá Þrándheimi.
Hægt er að horfa og hlusta á umfjöllun Gunnars á þessari slóð smella hér