Góður sigur hjá Blikastúlkum í kvöld

16.08.2011

Blikastelpur tóku á móti Fylkisstúlkum á Kópavogsvellinum í kvöld.  Með sigri áttu Blikarnir möguleika á að hafa sætaskipti við Fylki og koma sér aðeins upp töfluna og nær því svæði sem við viljum vera á.  Leikurinn hófst vel fyrir okkur Blika og sóttu stelpurnar  stíft fyrstu mínútur leiksins.  Á 6 mínútu fengu Blikar hornspyrnu sem Þórdís tók og setti boltann inn að fjærhorni  þar sem Rakel Ýr Einarsdóttir náði að skora eftir klafs á marklínunni.  Fyrsta mark Rakelar fyrir Breiðablik og væntanlega ekki það síðasta.  Eftir þetta náðu Fylkisstúlkur nokkrum tökum á miðju vallarins og stjórnuðu í raun leiknum það sem eftir lifði hálfleiks án þess að skapa sér nokkuð einasta færi sem orð er á gerandi.  Varnarmenn Blika stóðu vaktina vel .

Seinni hálfleikur var síðan rétt mínútu gamall þegar Fanndís var búinn að koma okkur í 2-0.  Hún fékk boltan á miðjum vallarhelmingi Fylkiskvenna og prjónaði sig í gegnum nokkra varnarmenn og skoraði með góðu skoti frá vítateig óverjandi fyrir Björg í marki Fylkis.  Eftir markið var nokkuð jafræði með liðunum, Fylkir að vísu aðeins meira með boltann en hættulaust að mestu  en Blikastelpurnar alltaf nokkuð ógandi í sínum sóknum.

Það var síðan á 80 mínútu leiksins að Fylkisstúlkur náðu að skora.  Þar var að verki  Anna Björg Björnsdóttir sem náði að vippa yfir Birnu í markinu sem var komin aðeins of framarlega.  Eftir þetta lá nokkuð á Blikunum en þær náðu að halda sjó og innbyrða mjög mikilvægan sigur í baráttunni.  Þrjú stig í húsi og liðið situr í fimmtasæti aðeins 3 stigum á eftir norðanstúlkum.





<- Til baka